Innbrot upplýst með samvinnu lögregluumdæma 21. ágúst 2008 15:05
Brotist var inn hjá þremur fyrirtækjum í Búðardal aðfaranótt miðvikudagsins 20. ágúst síðastliðinn. Stolið var bæði peningum og verkfærum. Í kjölfarið hófst vinna lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum við að upplýsa innbrotin og taldi lögreglan á Snæfellsnesi möguleika á því að aðilar í umdæmi hennar tengdust innbrotunum. Hófst þá samvinna lögregluliðanna við að upplýsa innbrotin. Lögreglan í Borgarfirði og Dölum stöðvaði bifreið á Snæfellsnesvegi í gær, sem var að koma af Snæfellsnesi. Í bifreiðinni fundust verkfæri, sem lögreglumenn töldu tengjast innbrotunum, ásamt töluverðu af peningaseðlum. Ökumaðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöðina í Borgarnesi. Eftir að fenginn var úrskurður héraðsdómara gerði lögreglan á Snæfellsnesi og lögreglan í Borgarfirði og Dölum húsleit í tveimur íbúðum á Hellissandi og einni bílgeymslu í Ólafsvík og handtók karl og konu grunuð um aðild að málinu. Í bílgeymslunni fannst hluti af þýfinu úr innbrotunum í Búðardal. Við yfirheyrslur viðurkenndi ökumaðurinn, sem lögreglan í Borgarfirði og Dölum handtók á Snæfellsnesvegi, og karlinn, sem lögreglan á Snæfellsnesi handtók við húsleitina, að hafa brotist inn í fyrirtækin í Búðardal og stolið þaðan peningum og verkfærum. Þá lagði lögreglan hald á eitt ólöglegt skotvopn sem fannst við húsleitina. Rannsóknin við að upplýsa þessi innbrot er til marks um þá góðu samvinnu, sem er á milli lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum og lögreglunnar á Snæfellsnesi. Frá þessu er sagt á fréttavef lögreglunnar.
Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnir vinnubrögð bæjarstjórnar Kópavogs harðlega Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Sjá meira