Styður ekki mótmælaaðgerðir vöruflutningabílstjóra Breki Logason skrifar 23. apríl 2008 16:12 Signý Sigurðardóttir forstöðumaður flutningasviðs SVÞ. „
Við styðjum ekki aðgerðirnar en höfum ákveðna samúð með tilteknum atriðum í málflutningi þeirra," segir Signý Sigurðardóttir forstöðumaður flutningasviðs Samtaka verslunar og þjónustu. Hún segir að unnið hafi verið að úrlausnum í málum flutningabílstjóra síðan í des. 2006 og tekur skýrt fram að aðgerðir flutningabílstjóra síðustu daga séu ekki í þágu félagsins. „Þorgeir Ljósvetningagoði sagði forðum daga að ef þú slítur í sundur lögin þá slíturðu og í sundur friðinn. Það er svolítið þannig sem ég horfi til mótmælanna. Menn eru reiðir og hafa verið lengi og að lokum verður eitthvað til þess að reiðin springur út. Mjög hefur verið þrengt að starfsumhverfi vöruflutningabílstjóra með reglugerðum síðustu ár, svo mjög að manni finnst oft sem ein lög gildi fyrir atvinnubílstjóra og önnur lög fyrir okkur hin," segir Signý. Hún segir meginregluna um að allir skulu jafnir fyrir lögunum virðast hafa gleymst hvað þessa stétt varðar. „Mótmæli bílstjóranna sýna óánægju þeirra og reiði en manni virðist sem menn hafa farið af stað án þess að vita kannski almennilega hverju þeir ætla að ná fram," segir Signý sem hefur ákveðna samúð með gremju þeirra og nefnir þar smásmugulegar reglur um hvíldartíma þar sem menn eru sektaðir og fá punkta fyrir allt niður í hálftíma umframtíma í akstri. „Það er ljóst að framkvæmd stjórnvalda á eftirliti með aksturs- og hvíldartímareglum og sektir og viðurlög vegna brota eru ein meginástæða þess að menn eru reiðir og það er atriði sem íslensk stjórnvöld hafa í hendi sér að breyta." Hún segir það segja sig sjálft að háar sektir og punktar vegna hálftímaumframaksturs séu farnar að snúast um eitthvað allt annað en umferðaröryggi. „Við erum búin að berjast í þessu máli síðan 2006 og fyrir síðustu áramót lá fyrir að ráðuneytin myndu sækja um undanþágur til Eftirlitsstofnunar EFTA frá ítrustu kröfum reglugerðarinnar. Samgönguráðherra fór með þá undanþágubeiðni til Brussel í síðustu viku. Hvað sektir og viðurlög varðar og framkvæmd eftirlits er málið alfarið í höndum íslenskra stjórnvalda og þau geta haft heilmikil áhrif á þetta umhverfi og séð til þess að skynsemi ráði þar för." Hún segir það út úr öllu korti að sekta menn vegna 15 mínútna umframaksturs fram að hvíld. Slíkt eftirlit sé streituvaldur og ekki til þess fallið að hvíla menn. „Þannig geta reglurnar eins og þeim er framfylgt hér orðið til að minnka umferðaröryggi í stað þess að auka það," segir Signý og bendir á að íslensk stjórnvöld geti breytt þessu. Hún segist ekki geta sagt til um hvort aðgerðir flutningabílstjóra síðustu daga eyðileggi fyrir því starfi sem þegar hefur áunnist. „Þessar aðgerðir eru ekki í okkar þágu og við viljum ekki vinna svona. En við höfum ákveðna samúð með málstaðnum."
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Sjá meira