Farandsalinn kom við á Blönduósi 20. júlí 2008 10:12 Nokkrar myndanna sem farandsalinn bauð til sölu.
Farandsalinn sem sagt var frá fyrr í morgun hér á Vísi virðist hafa komið við víðar en á Vestfjörðum. Kona á Blönduósi segir að fyrir rúmri viku hafi maður bankað upp á hjá sér og boðið til sölu málverk sem hann var með í poka. Málverkunum svipar til þeirra sem sjást á mynd hér til hliðar og voru gerð upptæk þegar farandsalinn var handtekinn á Ísafirði. Maðurinn virtist ekki tala ensku en rétti konunni þess í stað miða. Á miðanum hafði verið skrifað á íslensku að málverk farandsalans væru til sölu en kona sagðist ekki hafa áhuga. "Hann hristi þá bara hausinn og virtist nokkuð fúll. Því næst gekk hann í burtu," segir konan við Vísi. Eins og fram kom á Vísi fyrr í morgun handtók lögreglan á Vestfjörðum síðast liðið þriðjudagskvöld farandsölumann á Ísafirði sem hafði verið á ferð í byggðarlögum á norðanverðum Vestfjörðum og líklega víðar um land. Maðurinn hafði gengið í hús og boðið til sölu olíumálverk og annan varning. Maðurinn er af erlendu þjóðerni og hefur hvorki dvalar- né atvinnuleyfi hérlendis. Hann er grunaður um að hafa flutt varninginn ólöglega til landsins og skorti hann jafnframt nauðsynleg leyfi til sölumennskunnar. Maðurinn gisti fangageymslur á Ísafirði á meðan mál hans var rannsakað og s.l. miðvikudag ákvarðaði Héraðsdómur Vestfjarða að maðurinn skyldi vera í farbanni til 21. júlí skv. beiðni lögreglustjórans á Vestfjörðum. Lagt hefur verið hald á 905 myndir og muni sem tilheyra manninum auk nokkurs af fjármunum. Rannsókn málsins er lokið og hefur lögreglustjóri þegar gefið út ákæru á hendur manninum fyrir ofangreind brot. Maðurinn er frjáls ferða sinna.
Mest lesið Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent Fleiri fréttir „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Sjá meira