Enski boltinn

Ronaldo: Ég er alltaf á tánum

NordcPhotos/GettyImages

Cristiano Ronaldo neitar að lofa því að hann verði leikmaður Manchester United á næstu leiktíð líkt og forráðamenn félagsins hafa haldið fram í fjölmiðlum síðustu daga

Hann segir eðlilegt að góðir leikmenn séu eftirsóttir af bestu liðum heims en bætir því við að hann muni ekki slá slöku við á næstu leiktíð - óháð því hvar hann spilar.

"Ég er búin að fá hundruð spurninga um Manchester United og Real Madrid. Hvað á ég að segja? Á ég að segja að ég verði kyrr eða sé að fara? Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, það veit aðeins Guð. Ég get ekki sagt neitt meira," sagði Ronaldo í samtali við ESPN.

"Góðir leikmenn eru alltaf eftirsóttir og það er bara eðlilegt. Ég hef alltaf verið eftirsóttur og það er því ekki óvanalegt fyrir mig. Ég vil bara vera hamingjusamur og með gott fólk í kring um mig - hvar sem ég spila. Ég mun ekki slá slöku við. Ég er alltaf á tánum," sagði Portúgalinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×