Enski boltinn

Marca segir Robinho hafa farið fram á sölu

NordcPhotos/GettyImages

Spænska blaðið Marca hefur eftir Brasilíumanninum Robinho að hann vilji fara frá Real Madrid og segir Chelsea þegar komið í lauslegar viðræður við umboðsmann hans.

Brasilíumaðurinn hefur verið orðaður nokkuð við Chelsea að undanförnu, en talið er að félagið þurfi að greiða ríflega 30 milljónir punda fyrir hann.

Forráðamenn spænska félagsins hafa hingað til harðneitað að hann sé til sölu, en ljóst er að það gæti breyst ef Robinho krefst þess að fá að fara til Englands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×