550 milljóna niðurskurður hjá RÚV 28. nóvember 2008 07:00 Páll Magnússon, útvarpsstjóri.
Skorið verður niður um 550 til 600 milljónir króna í rekstri Ríkisútvarpsins ohf. vegna aðstæðna í efnahagslífinu. Á milli tuttugu og þrjátíu starfsmönnum verður sagt upp störfum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Endurskoðuð rekstraráætlun Ríkisútvarpsins verður kynnt í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er niðurskurðurinn nálægt fimmtán prósentum af rekstri fyrir yfirstandandi starfsár. RÚV var ætlað um þrír milljarðar í starfsfé í fjárlagafrumvarpi ársins 2009 sem er nú til endurskoðunar. Að auki fær stofnunin rúmlega milljarð króna í tekjur af auglýsingum. Niðurskurðurinn nemur því um 550 til 600 milljónum. Niðurskurðinum fylgja uppsagnir tuttugu til þrjátíu starfsmanna stofnunarinnar, samkvæmt heimildum. Ómar Benediktsson, stjórnarformaður RÚV, og Páll Magnússon útvarpsstjóri staðfestu við Fréttablaðið í gær að endurskoðuð rekstraráætlun yrði kynnt í dag en vildu að öðru leyti ekkert tjá sig um málið. Fjármagnskostnaður stofnunarinnar er að sliga reksturinn, samkvæmt heimildum blaðsins, eins og fleiri fyrirtækja og stofnana hérlendis. Eins að mikil óvissa sé um reksturinn vegna upptöku nefskatts 1. janúar næstkomandi, sem ekki hefur verið gengið frá, og fyrirséð að heimildir stofnunarinnar til að beita sér á auglýsingamarkaði verða takmarkaðar. Aðgerðirnar sem kynntar verða í dag séu því til að bregðast við stöðunni eins og hún er í augnablikinu en aðeins sé um fyrstu skref að ræða. Búast megi við mun harkalegri niðurskurðaraðgerðum þegar allt hefur verið talið og kynning rekstraráætlunar á morgun sé fyrsta skrefið af mun sársaukafyllri aðgerðum.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira