Innlent

Algerlega árangurslaus fundur segja ljósmæður

Samningafundi kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands og samningnefdar ríkisins lauk um kl. 11 í dag (9/7) án þess að nokkuð miðaði í samningsátt.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá BHM nú fyrir stundu. Þar segir að kröfur beggja séu í steyptum farvegi og aðilar séu ekkert nær samningum. Þar segir ennfremur að um tvö aðskilin mál sé að ræða.

„Ljósmæður hafa frá upphafi lýst yfir vilja, við samninganefnd ríkisins, um að ganga að þeim samningi sem nú þegar hefur verið gerður við flest félög innan BHM og felur m.a. í sér 20300 kr hækkun allra grunnlauna.

Viðræður stranda hins vegar á kröfu ljósmæðra um að fá menntun sína og störf metin að verðleikum í samræmi vð aðrar stéttir í þjónustu hins opinbera með svipaða menntun. Þessari kröfu hefur Ljósmæðrafélag Íslands haldið á lofti í mörg ár og eru ljósmæður því langþreyttar á ástandinu.

Síðastliðinn aldarfjórðung hefur menntamálaráðuneytið gert kröfu um 6 ára nám til embættisprófs ljósmæðra. Síðastliðin 13 ár hefur allt námið verið á háskólastigi.

Langlægst laun miðað við menntun

Tölur frá kjararannsóknarnefnd opinberra starfsmanna sýna best stöðu stéttarinnar miðað við aðrar stéttir. Til ljósmæðra eru gerðar einar hæstu menntunarkröfur sem til háskólamanna eru gerðar af hálfu ríkisins. Af 24 stéttarfélögum innan BHM eru ljósmæður í 7. neðsta sætinu þrátt fyrir að vera eitt af tveimur félögum með mestu menntunarkröfurnar.

Sex efstu félög innan BHM eru með töluvert hærri meðalgrunnlaun en ljósmæður eða 73.511 krónum hærri að meðaltali. Krafa Ljósmæðrafélags Íslands er að ljósmæður verði eftir næstu kjarasamninga í hópi þessara sex efstu félaga innan BHM.

Langt í næsta fund

Næsti samningafundur er boðaður 6. ágúst kl. 13, eða eftir liðlega 4 vikur.

Ljósmæðrafélag Íslands lýsir yfir áhyggjum sínum með ástand mála í ljósi þess að um helmingur stéttarinnar hefur nú þegar sagt upp störfum sínum. "






Fleiri fréttir

Sjá meira


×