Yfirvaldið á Álftanesi sagt hunsa Hæstarétt Garðar Örn Úlfarsson skrifar 18. maí 2008 06:00 Miðskógar 8 Tölvugerð mynd sýnir húsið sem átti að byggja. Reisa má hús á lóðinn en þak á útsýnisturni var of hátt segir Hæstiréttur Íslands. Mynd/EON Arkitektar
Eigandi sjávarlóðarinnar á Miðskógum 8 og bæjaryfirvöld á Álftanesi deila enn um rétt hans til að byggja á lóðinni þrátt fyrir að Hæstaréttardómur sé fallinn í málinu. Skipulags- og byggingarnefnd Álftaness hefur haft til umfjöllunar breytingar á deilskipulagi við Skógartjörn þar sem gatan Miðskógar er. Meðal breytinganna er að fella út byggingarlóð Henriks Thorarensens á Miðskógum 8 og skilgreina hana sem óráðstafað svæði. Henrik hafi látið vinna fyrir sig teikningar að einbýlishúsi en fékk þær ekki samþykktar. Hófst þá málrekstur sem fyrir mánuði endaði með dómi Hæstaréttar sem tók undir með Henrik og sagði lóð hans vera byggingarlóð samkvæmt skipulagi frá árinu 1980. Hins vegar hefðu uppdrættir að húsi hans ekki samrýmst skilmálum deilskipulagsins og því rétt hjá bæjaryfirvöldum að synja honum um að reisa hús samkvæmt þeim teikningum. Hæstiréttur segir þannig að byggja megi hús á lóðinni þótt þessar tilteknu teikningar hafi farið út fyrir skilmálana. Það lítur samt ekki út fyrir að Henrik fái að byggja því eins og áður segir hyggjast bæjaryfirvöld afmá byggingarlóð hans út af skipulaginu. „Ef fyrirætlanir skipulags- og byggingarnefndar og sveitarfélagsins ganga eftir er alveg ljóst að umbjóðandi minn [Henrik] mun ekki láta þær yfir sig ganga,“ segir Guðmundur Ágústsson, lögmaður Henriks, í bréfi til bæjaryfirvalda á Álftanesi. Guðmundur segir breytingarnar á skipulaginu ekki aðeins svipta Henrik eignarrétti sínum heldur ganga þvert á dóm Hæstaréttar sem þannig væri gefið „langt nef“ auk þess sem bærinn yrði bótaskyldur. Deilan um sjávarlóðina Miðskóga 8 hefur flækst af því að beint fyrir ofan lóðina býr Kristján Sveinbjörnsson, odddviti meirihluta Álftaneslistans og forseti bæjarstjórnar. Kristján hafði nýtt hina óbyggðu lóð, meðal annars fyrir vaðlaug sem hann útbjó. Kristján hefur beitt sér gegn því að Henrik fái að byggja á lóðinni en hefur ávallt vísað á bug ásökunum um að afstaða hans markist af eiginhagsmunum. Segist hann einfaldlega telja að ný bygging rúmist ekki á lóðinni þar sem hún sé svo nærri sjávarkambinum.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira