REI verði losað úr áhætturekstri Breki Logason skrifar 18. apríl 2008 16:05 Júlíus Vífill Ingvarsson, stjórnarmaður í Orkuveitur Reykjavíkur.
Fundi stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur var að ljúka í húsi Orkuveitunnar nú fyrir stundu. Þar var ekki lögð fram tillaga um að hefja undirbúning að sölu REI eins og greint var frá í Fréttablaðinu í morgun. Hinsvegar var rætt hvort hægt sé að losa REI út úr þeim verkefnum sem þykja of áhættusöm líkt og Vísir sagði frá í morgun. Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að meirihlutinn í stjórn Orkuveitunnar hafi lagt fram tillögu sem er svohljóðandi: „Megin tilgangur Orkuveitu Reykjavíkur er að tryggja Reykvíkingum og öðrum notendum á heimamarkaði góða þjónustu á sem bestu verði en ekki að taka þátt í áhættusömum fjárfestingum erlendis. Með það að markmiði að staðið verði vörður um þessa kjarnastarfsemi og mikilvægt almannaþjónustuhlutverk fyrirtækisins samþykkir stjórn Orkuveitu Reykjavíkur að unnin verði úttekt á REI og verðmat á verkefnum þess með það fyrir augum að fyrirtækið geti einbeitt sér að ráðgjöf og þróun á verkefnum en hugað verði að sölu á þeim verkefnum sem ekki er nauðsynleg til þeirrar starfsemi. Þekking starfsmanna Orkuveitunnar verði áfram nýtt á vettvangi REI og Orkuveitu Reykjavíkur til ráðgjafaþjónustu í þágu fyrirtækja á sviði jarðhitaverkefna og umhverfisvænna orkugjafa samkvæmt sérstöku samkomulagi." Júlíus segir að tillagan hafi síðan verið rædd og leggur áherslu á að ekki sé búið að samþykkja hana enn. „Til þess að að reyna að ná sem bestri samstöðu var ákveðið að fresta tillögunni en hún verður síðan rædd á sérstökum samstarfsfundi innan nokkurra daga áður en hún verður tekin fyrir á formlegum stjórnarfundi næst. Það verður semsagt gengið sem lengst í að vinna þetta í sem mestri sátt og samlyndi," segir Júlíus. Hann segir að nú verði farið yfir þau verkefni sem eru í gangi en engin afstaða verði tekin strax um þau verkefni enda geti ýmis verðmæti legið í þeim. „Með þessu er verið að draga úr áhættu sem fylgir verkefnum sem þessum og það er verið að gera starfsemi REI léttari og markvissari enda á félagið mörg sóknarfæri," segir Júlíus að lokum Minnihlutinn lét bóka á fundinum að nái þessar breytingar fram að ganga gæti það gert Orkuveituna skaðabótaskylda.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Sjá meira