Icelandair meðal óstundvísustu flugfélaga Evrópu 7. júlí 2008 10:11
Icelandair er í fjórða sæti yfir þau evrópsku flugfélög þar sem seinkun á flugi til áfangastaða í Evrópu var hvað mest á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram í samantekt Sambands evrópskra flugfélaga, Association of Europena Airlines. Samkvæmt tölum sambandsins eru rúmlega 73 prósent flugferða Icelandair á áætlun en þar er miðað við 15 mínútna seinkun eða minna. Efst á listanum yfir óstundvís flugfélög er breska flugfélagið British Airways en tæplega 60 prósent flugferða félagsins voru á áætlun á fyrsta ársfjórðungi. Þar eftir kom Air Malta með 67 prósent flugferða á áætlun og Finnair er í þriðja sæti með 71 prósent. Skandinavíska flugfélagið SAS skipar áttunda sætið en rúmlega þrjár af hverjum fjórum flugferðum þess eru á áætlun. Í hópi þeirra stundvísustu má finna mörg austur- og suðurevrópsk flugfélög. Efst á þeim lista er Malev Hungarian Airlines með 86 prósent flugferða á áætlun og þar á eftir koma Czech Airlines, Air France, Alitalia með tæp 84 prósent. Samband evrópskra flugfélaga hefur enn fremur tekið saman lista yfir þá flugvelli í Evrópu þar sem seinkunin er hvað mest. Á toppnum trónir Heathrow-flugvöllur í Lundúnum en tafir urðu á rúmlega 44 prósent flugferða frá flugvellinum til annarra áfangastaða í Evrópu. Þar á eftir kemur Dyflinnarflugvöllur með seinkun í þriðjungi ferða og þar á eftir koma flugvellirnir í Helsinki, Genf og Frankfurt.
Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira