Niðurskurðurinn mun heyrast í útvarpinu og sjást í sjónvarpinu 28. nóvember 2008 17:02 „
Það er augljóst mál að þegar við skerum niður um 700 milljónir mun það heyrast í útvarpinu og það mun sjást í sjónvarpinu," segir Páll Magnússon útvarpsstjóri um niðurskurðartillögur sem voru kynntar í dag. Hann segir þó að reynt verði að búa til eins góða dagskrá og mögulegt er fyrir þann pening sem fyrirtækið hafi úr að spila. „Við reynum að láta þetta koma sem allra allra minnst niður á þeirri grunnþjónustu sem við erum að veita en það væri sjálfsblekking að halda að þetta hefði engin áhrif," segir Páll. Páll fundaði með starfsfólki Ríkisútvarpsins í dag „Ég var nú bara mjög ánægður með þennan fund. Þetta var auðvitað erfitt," segir Páll. Erfitt sé að kynna aðgerðir af þessu tagi, en fundurinn hafi verið mjög góður. Hann hafi ekki fundið annað en að fólk hefði skilning á þessu þó að auðvitað væru allir óánægðir með að þetta hafi þurft að verða raunin. Páll segir að orsakir aðgerðanna séu þær að 750 milljóna króna tap hafi orðið á síðasta rekstrarári. Gert hafi verið ráð fyrir að tap á rekstrinum yrði 200 milljónir króna. Sú hafi orðið raunin en vegna verðbólgu hafi fjármagnskostnaðurinn orðið 600 milljónum meiri en gert hafi verið ráð fyrir. Við þessu hafi þurft að bregðast en jafnframt þeirri óvissu sem ríki um framtíðina.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira