Samráð ráðherra í algjörum molum á ögurstundu 7. nóvember 2008 14:18 MYND/Anton
Siv Friðleifsdóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins í utanríkismálanefnd, segir að ekki verði annað ályktað annað af símtali Árna Mathiesen fjármálaráðherra og Alistairs Darling, starfsbróður hans, í október eftir fall bankanna en að samráð Árna við Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hafi verið í algjörum molum á ögurstundu. Þetta kemur fram í bókun hennar á fundi utanríkismálanefndar í morgun. Siv segir einnig að út frá símtali Árna og Darlings verði ekki annað ráðið en að viðskiptaráðherra hafi á fundi sínum þann 2. september gefið breskum stjórnvöldum loforð eða yfirlýsingu af einhverju tagi vegna stöðu Landsbankans og hugsanlega annarra banka, sem síðan fjármálaráðherra virðist ekki kannast við. „Símtal ráðherranna lak til fjölmiðla og birtist opinberlega fyrst á Íslandi. Upplýsingaleki af þessum toga veldur óbætanlegum álithnekki á íslenskri stjórnsýslu og stórskaðar stöðu Íslands í samskiptum við stjórnvöld annarra landa. Í kjölfar þessa er ólíklegt að ráðherrar annarra landa treysti sér til að eiga trúnaðarviðræður við íslenska stjórnvöld og ráðherra um nokkurt sem máli skipti um langt skeið. Verða slík samtöl væntanlega um léttvæg mál allt þar til tekist hefur að skapa traust á íslenskri stjórnsýslu á nýjan leik. Beðið er um að nefndin verði upplýst um hvernig ofangreint símtal lak til fjölmiðla í ljósi alvarleika málsins," segir einnig í bókun Sivjar. Auk þessa bað Siv um að öll minnisblöð vegna fundar Björgvins G. Sigurðssonar og Alistair Darling þann 2. september yrðu lögð fram og sömuleiðis minnisblöð vegna símtals Árna og Darlings. Þá bað hún um bréf sem Árni vitnar ítrekað í í viðtalinu og afrit af samningi sem íslensk stjórnvöld gerðu nýlega við hollensk stjórnvöld vegna deilna um Icesave-reikningana.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira