Framsókn og Sjálfstæðisflokkur safna liði á palla Ráðhússins 20. ágúst 2008 14:31 Efnt var til mótmæla á pöllum Ráðhússins þegar meirihluti Sjálfstæðisflokksins og F-lista tók við í janúar síðastliðnum.
Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hvetja félagsmenn sína til þess að fjölmenna á palla Ráðhússins í fyrramálið þar sem von sé á skipulögðum aðgerðum af hálfu minnihlutaflokkanna í borgarstjórn. Í pósti sem sendur er frá skrifstofu Framsóknarflokksins til stjórnarmanna í kjördæmissambandi og framsóknarfélögunum í Reykjavík, og Vísir hefur undir höndum, er minnt á að nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks taki formlega við á aukaborgarstjórnarfundi í fyrramálið klukkan tíu. „Athugið breytta tímasetningu fundarins," segir í póstinum. Þar segir einnig að mikilvægt sé að framsóknarmenn mæti á pallana þar sem búist sé við skipulögðum aðgerðum af hálfu minnihlutaflokkanna. „Því viljum við hvetja ykkur til að fjölmenna og taka með fjölskyldu og vini. Gott er að mæta tímanlega þar sem búist er við örtröð svo menn þurfa að vera mættir á bilinu 8:30-9," segir í tilkynningunni. Þar segir einnig að framsóknarmenn og sjálfstæðismenn ætli að reyna að halda skipulega utan um mætingu á pallana og er fólk beðið um að staðfesta komu sína. Fram kom á mbl.is í morgun að Ungir jafnaðarmenn og Ung vinstri græn hyggist á morgun efna til mótmæla fyrir utan ráðhúsið fyrir borgarstjórnarfundinn en ekki verður farið á pallana sjálfa.
Mest lesið Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Erlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Fleiri fréttir Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Sjá meira