Sjötíu prósent vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni 10. nóvember 2008 12:21
Meirihluti landsmanna, eða 70 prósent, vill að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram á sínum stað í Vatnsmýrinni. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup vann í september og byrjun október fyrir Flugstoðir. Fram kemur í tilkynningu Flugstoða að þetta sé mun hærra hlutfall en fyrir þremur árum þegar sömu viðhorf voru könnuð. Þá töldu 55 prósent svarenda að völlurinn ætti að vera áfram í Vatnsmýrinni. Vakin er athygli á því að tveir af hverjum þremur Reykvíkingum vill ekki hreyfa flugvöllinn og að mati 68 prósenta íbúa nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur á ekki að færa flugvöllinn. 78 prósent íbúa annarra sveitarfélaga landsins eru sömu skoðunar. Þegar afstaðan er skoðuð með tilliti til stjórnmálaskoðana kemur fram að um helmingur kjósenda Samfylkingar telur rétt að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram þar sem hann er. Mun meira fylgi er við núverandi staðsetningu flugvallarins hjá kjósendum annarra flokka. Þannig telja 92 prósent kjósenda Framsóknarflokksins að völlurinn eigi að vera áfram í Vatnsmýrinni, 75 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokks og 71 prósent kjósenda Vinstri - grænna. Könnunin var gerð 25. september til 5. október síðastliðinn á Netinu. Úrtakið var 1200 manns af landinu öllu á aldrinum 18 til 75 ára sem voru valdir af handahófi úr Viðhorfahópi Capacent Gallup. Svarhlutfall var 67,5 prósent. Flugstoðir vekja athygli á því að um hálf milljón farþega hafi farið um Reykjavíkurflugvöll á síðasta ári og fjölgaði þeim um rúmlega 12 prósent frá árinu áður. Alls vinna um 600 manns við margvísleg störf tengd flugi á Reykjavíkurflugvelli.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira