Segja rekstrarforsendur sauðfjárbænda brostnar 14. ágúst 2008 13:00 MYND/GVA
Bændasamtökin segja verðskrá Norðlenska fyrir sauðfjárafurðir haustið 2008 langt undir væntingum og rekstrarforsendur margra sauðfjárbænda brostnar. Samkvæmt verðskránni hækkar verð á alla kjötflokka um 15 prósent en sauðfjárbændur gerðu sér vonir um allt að 27 prósenta hækkun. Norðlenska matborðið birti í gær fyrst afurðasölufyrirtækja verðskrá fyrir sauðfjárafurðir haustið 2008. Samkvæmt þeirri verðskrá eru breytingarnar fólgnar í 15 prósenta hækkun á alla kjötflokka og greiðslur fyrir kjöt til útflutnings hækka um tæp þrjátíu prósent. Í tilkynningu frá Bændasamtökunum segir að bændur hafi beðið óþreyjufullir eftir verðlistum sláturleyfishafa og ljóst sé að rekstrarforsendur margra þeirra séu brostnir með svona lítilli hækkun. Sauðfjárbændur hafi gert sér vonir um allt að 27 prósent hækkun eins og fram kemur í viðmiðunarverði Landsamtaka sauðfjárbænda. Þá segja Bændasamtökin að bændur þurfi að mæta miklum hækkunum á aðföngum, meðal annars vegna hækkana erlendis til dæmis á áburði, olíu og rúlluplasti. Fimmtán prósenta hækkun mæti aukakostnaði á engan hátt. Á vef Norðlenska segir ljóst að verðhækkunum til framleiðenda verði að koma út í verðlagið en fyrirtækið geti ekki tekið þær allar á sig. Hækkanir verði þó að vera hóflegar því annars sé hætta á að dilkakjötssala minnki enn frekar gert hafi. Þá kemur einnig fram að Norðlenska muni breyta verðskrá sinni til samræmis við verðskrá annarra stórra sláturleyfishafa ef þörf krefji.
Mest lesið Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Innlent Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Innlent Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Innlent Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Erlent Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Erlent Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Innlent Fjöldi svæða á landinu sambandslaus með öllu Innlent Fleiri fréttir Fjöldi svæða á landinu misst samband Fjölskyldur fórnarlamba krefjast ábyrgðar Sádi-Arabíu Staðsetning Íslands „hernaðarlega mjög mikilvæg“ Fjögur ár fyrir smygl á rúmum fjórum kílóum af kókaíni 325 milljónir í næsta áfanga LED-ljósavæðingar í Reykjavík Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Líkamsárásir, heimilisofbeldi og vopnaður ökumaður Gjaldtaka af bílum sé hærri en fjárframlög til vegagerðar Allt að helmingur barna heima vegna veikinda Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Landhelgisgæslan eignast sjálfstýrðan kafbát „Mér persónulega fannst þetta gríðarlega gaman“ Hugrakkir drengir opnuðu sig í fréttum, breyttu kerfinu og skáluðu með Ingu Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Refsing milduð yfir burðardýri Finnst brotið á réttindum barnsins að orlofið sé skert Þjófar sendir úr landi Fær bara hálft fæðingarorlof og veik leikskólabörn Björn Dagbjartsson er látinn Hvetja til bólusetningar vegna inflúensufaraldurs Slapp ekki með typpamynd til þrettán ára Halda starfsleyfinu þrátt fyrir kröfur íbúa Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Vill skoða úrsögn úr EES Leigubílstjóri og vinur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Skaftárhlaup enn yfirstandandi Helgi Valberg tekur við ritarastöðunni Stór áfangi Borgarlínu afgreiddur í skipulagsráði og á leið í kynningu Rannsókn lokið þrjátíu árum eftir snjóflóðið Kópavogur svarar: Ljósmagnið á skiltinu minnkað og þverun væntanleg Sjá meira