Ungir Jafnaðarmenn í Hafnarfirði álykta um brettagarð 5. júní 2008 22:24 Jón Kr. Óskarsson (til vinstri), formaður félags eldri borgara í Hafnarfirði.
Ungir Jafnaðarmenn í Hafnarfirði hafa sent frá sér ályktun þar sem þeir harma að brettagarður við Víðistaðartún skuli vera kominn í strand hjá bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Vísir fjallaði um málið fyrr í dag. Ungum jafnarðarmönnum þykir afleitt að blaðamaður Vísis skuli stilla eldir borgurum upp á móti brettaaðstöðunni eins og það er orðað í ályktuninni sem má lesa í heild sinni hér að neðan. Einnig má sjá frétt Vísis frá því fyrr í dag neðst í þessri frétt. Ályktun félagsfundar Ungra Jafnaðarmanna í Hafnarfirði Fundur haldinn 5. Júní 2008 Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði harma það að brettagarður við Víðistaðartún skuli vera komin í strand hjá bæjarstjórn Hafnarfjarðar. UJH harma þá fordóma sem komið hafa fram gagnvart hjólabrettaiðkendum í afmörkuðum hópi fólks hér í bæ og krefjast þess að bæjarstjórn Hafnarfjarðar taki ekki fordóma og fáfræði sem gild rök í málinu. Önnur sveitarfélög á landinu hafa tekið forystu hvað varðar uppbyggingu á aðstöðu fyrir þessa iðkendur, áfallalaust, og situr nú Hafnarfjörður eftir. Í fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2008 hefur verið gert ráð fyrir 30 milljónum í aðstöðu þessa og hvetur UJH bæjarstjórn Hafnarfjarðar að vinna hörðum höndum að því að finna lausn á aðstöðuleysi brettaiðkenda hið snarasta, hjólabrettaiðkendum til góðs og íbúum Hafnarfjarðarbæjar til sóma. UJH þykja afleitt að blaðamaður vísis.is skuli stilla eldri borgurum upp á móti brettaaðstöðunni, enda hefur formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði krafist þess að orð hans, sem rangt voru eftir höfð, verði umsvifalaust leiðrétt. UJH ítreka stuðning sinn við púttvöll eldri borgara hver sem staðsetning hans verður enda þurfa eldri borgarar aðstöðu fyrir sín áhugamál, rétt eins og brettaiðkendur. Athugasemd ritstjóraEkki náðist í Jón Kr. Óskarsson formann félags Eldri borgara í Hafnarfirði eftir að hann sendi tölvupóst þar sem hann fór fram á leiðréttingu, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Ritstjórn Vísis skilur ekki hvað það er í orðum Jóns sem hann vill að sé leiðrétt og stendur því við fréttina.
Tengdar fréttir Eldri borgarar vilja púttvöll í stað brettagarðs Harðar deilur eru í Hafnarfirði vegna fyrirhugaðs brettagarðs sem átti að rísa á Víðistaðatúni. Félag eldri borgara í bænum vill frekar púttvöll á sama stað. Formaður félagsins segir minni læti í rólegum pútturum en ungum brettastrákum. 5. júní 2008 10:31 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Sjá meira
Eldri borgarar vilja púttvöll í stað brettagarðs Harðar deilur eru í Hafnarfirði vegna fyrirhugaðs brettagarðs sem átti að rísa á Víðistaðatúni. Félag eldri borgara í bænum vill frekar púttvöll á sama stað. Formaður félagsins segir minni læti í rólegum pútturum en ungum brettastrákum. 5. júní 2008 10:31