Vinna að nýjum stjórnarsáttmála ekki hafin 11. nóvember 2008 14:39 Geir H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar undirrituðu núverandi stjórnarsáttmála í Ráðherrabústaðnum á Þingvöllum 23. maí 2007.
Þeim fer fjölgandi í röðum Samfylkingarinnar sem telja nauðsynlegt að stjórnarsáttmáli ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar verði tekinn upp og endurskrifaður. Ríkisstjórnin hafi verið mynduð um flest annað en það sem nú blasir við í þjóðfélaginu. Yfirstandandi efnahagsþrengingar og fall bankanna kalli á að stjórnin komi sér saman um framtíðarsýn og um leið nýjan stjórnarsáttmála. Undanfarnar vikur hefur flokkanna einkum greint á um traust til yfirstjórnar Seðlabankans og hugsanlegar aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hávær krafa er um það innan Samfylkingarinnar að seðlabankastjórarnir víki og alvarlega verði rætt um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki viljað ljá máls á því. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sagði í umræðum á Alþingi 15. október að endurskoða yrði stjórnarsáttmálann með tilliti til afstöðunnar til Evrópusambandsins. ,,Vissulega var ekki samið um þetta meðal stjórnarflokkanna en þjóðfélagið er breytt frá því sem það var í gær," sagði Jóhanna þá. Hún sagði að ekkert ætti að vera ,,tabú" og allir yrðu að skoða aðild að sambandinu með opnum hug. Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna voru spurðir um málið á fundi með blaðamönnum í hádeginu og hvort byrjað væri að vinna að nýjum stjórnarsáttmála. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir svaraði og sagði einfaldlega: ,,Sú vinna er ekki hafin." Núverandi stjórnarsáttmáli var undirritaður af Ingibjörgu Sólrúnu og Geir H. Haarde á Þingvöllum 23. maí 2007.
Mest lesið Íslendingur handtekinn á EM Innlent Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hljóp á sig Innlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Fleiri fréttir Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Sjá meira