Sektað fyrir brot á uppboðsmarkaði fyrir fiskafurðir 25. apríl 2008 11:21
Samkeppniseftirlitið hefur sektað Fiskmarkað Íslands um um tíu milljónir króna fyrir að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að tvinna saman kaup og slægingu á fiski og þannig raskað samkeppni á uppboðsmarkaði fyrir fiskafurðir. Það var fyrirtækið Frosfiskur sem kvartaði undan því að kaupendur á fiski væru neyddir til þess að kaupa slægingu sem þeir höfðu ekki óskað eftir á óslægðum fiski sem þeir höfðu keypt á markaðnum. Með því var eðlilegri samkeppni á uppboðsmarkaði fyrir fiskafurðir raskað mati Samkeppniseftirlitsins. Þá hafði háttsemi Fiskmarkaðarins einnig samkeppnishamlandi áhrif á markaði fyrir slægingu þar sem sá fiskur sem fiskkaupendur höfðu keypt sem óslægðan var slægður í slægingarþjónustu markaðarins. Áttu því keppinautar Fiskmarkaðar Íslands á slægingarmarkaði ekki kost á því að gera tilboð í slægingu á þeim fiski. Þá gátu kaupendur að fiski sem einnig reka slægingarþjónustu ekki slægt sjálfir fiskinn sem þeir keyptu. Máttu ekki setja Frostfisk á válista Samkeppniseftirlitið komst einnig að því að Reiknistofa fiskmarkaða hf. hefði farið gegn 11. grein samkeppnislaga með því að setja Frosfisk á válista vegna ógreiddrar slægingarskuldar. Félag sem lenti á válista var útilokað frá viðskiptum á Fiskaneti RSF þar til skuldin hafði verið greidd. ,,Því er það mat eftirlitsins að um ólögmæta aðgerð af hálfu RSF hafi verið að ræða sem raskað gat samkeppni á viðkomandi markaði. Hins vegar verður að athuga að lagaumhverfi starfsemi RSF er nokkuð óskýrt og því er það mat eftirlitsins að ekki sé tilefni til þess að sekta RSF vegna brota félagsins," segir einnig á vef Samkeppniseftirlitsins.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fleiri fréttir Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Sjá meira