Fráleitt að afsala sér forræði yfir Hallargarðinum 25. apríl 2008 13:47 Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi.
Fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði telur fráleitt að undirrita samning þar sem Reykjavíkurborg afsalar sér í raun forræði yfir Hallargarðinum öllum og afhendir þar að auki einkaaðilum lóð sem börn og ungmenni hafa nýtt sér til leikja um áratugi. Í tilkynningu frá VG segir Garðurinn og gerðið á bak við húsið sé í eigu almennings og borgaryfirvöld og eigi að hafa fullan og óskoraðan rétt til að sinna honum eins og öðrum opnum svæðum borgarinnar án íhlutunar einkaaðila. „Það er óskiljanlegt að meirihluti borgarráðs kjósi að taka þessa ákvörðun í ljósi þess að hún byggir á óskýrum teikningum, ósamræmi á milli teikninga og texta í kaupsamningi og óljósu orðalagi um upprunalega mynd garðsins. Af teikningunni má þó ráða að ætlunin er að rjúfa skarð í veggi sem njóta fornleifaverndar og er það með eindæmum að ekki skuli kveðið á um það í kaupsamningi eða afsali þegar um opinberan aðila er að ræða. Ekki hefur verið leitað umsagnar Húsafriðunar ríkisins þó teikningarnar gefi það í skyn að færa eigi til tröppur og fleira sem telst til næsta umhverfis og útlits friðaðs mannvirkis í opinberri eigu. Þá er án raunverulegs samráðs ætlunin að rústa höfundarverki Jóns H. Björnssonar landslagarkitekts sem hannaði Hallargarðinn. Þá vekur það furðu að ekki skuli vera ætlunin að hafa samráð við íbúa svæðisins og loks ekki liggi fyrir lóðaleigusamningur sem á þó að kveða á um aðgang almennings að Hallargarðinum. Vinstri græn lögðust gegn sölu hússins á sínum tíma en hér tekur steininn úr þegar auðmenn fá slík forréttindi til afnota. Borgarfulltrúar hafa nú í vetur ítrekað verið minntir á mikilvægi þess að gæta vel að almannahagsmunum þegar ásælni einkaaðila verður sem áköfust. Meðal annars hefur umboðsmaður Alþingis spurt alvarlegra og gagnrýninna spurninga um ráðstöfun á opinberum eigum sem fulltrúum meirihlutans væri hollt að hafa í huga. Það er skylda kjörinna fulltrúa að gæta hagsmuna almennings en ekki sérhagsmuna einstaklinga, sama hvað þeir heita og sama hvað þeir eru auðugir. Til þess vorum við kosin og þar liggur ábyrgð okkar. Minnt skal á að Hallargarðurinn er fyrsti skipulagði almenningsgarður borgarinnar og gegnir stóru hlutverki í samkomuhaldi borgarbúa allra á tyllidögum og sem útivistarsvæði fyrir íbúa Þingholtanna alla aðra daga. Vinstri græn munu hér eftir sem hingað til standa vörð um almannahagsmuni en ekki sérhagsmuni auðmanna," segir í tilkynningu frá VG.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Sjá meira