Segir verðbólguástandið skelfilegt 28. apríl 2008 20:04
Tólf mánaða verðbólga mælist nú 11,8 prósent samkvæmt útreikningum Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs. Síðustu þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 6,4 prósent sem jafngildir 28 prósent verðbólgu á ári. Verðbólgan er nú tæplega fimmfalt yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans þrátt fyrir mikla hækkun stýrivaxta. Ljóst er að þessi hækkun mun hafa verulega áhrif á skuldsettustu heimilin í landinu. Í síðasta mánuði jukust verðtryggðar skuldir heimilanna um 20 milljarða vegna verðbólgu - ef tekið er mið af hækkun vísitölu milli mánaða. Sé þessari hækkun dreift jafnt á öll heimili í landinu skuldar hvert hemili að meðaltali um 155 þúsund krónum meira í dag en fyrir mánuði. Þökk sé verðbólgunni. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambandsins, segir ástandið vera skelfilegt. „Maður sér fyrir að það unga fólk sem hefur verið að kaupa íbúðir á síðustu árum er á þráðbeinni leið í meiri háttar vanda sem samfélagið þarf að takast á við," sagði Grétar. Kjarsamningar verða endurskoðaðir í byrjun næsta árs en Grétar segir útlitið vera svart. „Það er ekki einu sinni kraftaverk að forsendur haldi. Það reynir annaðhvort á endurskoðunina eða uppsögn, það er deginum ljósara."
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira