Innlent

Ráðast í aðgerðir til þess að vinna gegn verðlagshækkunum

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita fjórar milljónir króna til aðgerða sem miðað að því að stemma stigu við hækkun verðlags og þar með verðbólgu.

Í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu segir að sökum lækkunar á gengi íslensku krónunnar og hækkunar hrávöruverðs á alþjóðlegum mörkuðum hafi skapast nokkur þrýstingur til hækkunar verðlags. Nauðsynlegt sé að gripið verði til víðtækra aðgerða gegn þessu. Eftir að hafa fundað með helstu hagsmunahópum lagði viðskiptaráðherra til nokkrar aðgerðir.

 

Þeirra á meðal var að fela ASÍ að gera sérstakt átak í verðlagseftirliti og fylgjast með þróun vöruverðs með tíðari hætti en áður og miðli niðurstöðum sínum til almennings. ,,Nauðsynlegt er að almenningur fái greinargóðar upplýsingar um verðþróun einstakra aðila á markaði sem og þróun á verði í einstökum vöruflokkum. Slíkt er forsenda þess að neytendur geti hagað innkaupum sínum og neyslumynstri með skynsamlegum hætti á tímum örra verðbreytinga," segir í tilkynningu viðskiptaráðuneytisins.

Þá hefur Neytendastofu verið fail að fylgjast sérstaklega með verðmerkingum á vöru og þjóustu og endurskoða þær reglur sem gilda um verðmerkingar. Stefnt er að því að kveðið verði á um viðurlög í þeim tilvikum þegar reglum er ekki fylgt. Viðurlög verða í formi sekta og ákvarðanir birtar á heimasíðu Neytendastofu.

 

Þá leggur ráðherra til að skipaður verði sérstakur starfshópur fjármálaráðuneytis og viðskiptaráðuneytis til að endurskoða reglur um netverslun, einkum frá öðrum löndum EES-svæðisins, með það að markmiði að auka samkeppni og lækka vöruverð. Enn fremur á að ráðast í kynningarátak í samstarfi við Neytendasamtökin í þeim tilgangi að virkja neytendur betur á vörumarkaði. Þá verður leitað samstarfs við Samtök verslunar og þjónustu um aukna hagræðingu í verslunarrekstri.

Viðskiptaráðherra mun funda með forseta Alþýðusambands Íslands, forstjóra Neytendastofu og formanni Neytendasamtakanna klukkan 11 í dag um framkvæmd ofangreindra aðgerða. Þar verður meðal annars skrifað undir samning við ASÍ um framkvæmd verðkannana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×