Telur fáránlegt að halda í húsin að Laugavegi 4 og 6 10. janúar 2008 16:00 MYND/Einar
Svava Johansen, verslunarrekandi á Laugaveginum, telur það fáránlegt ef halda eigi húsunum að Laugavegi 4 og 6 og segir það mikla afturför ef af verði. Hún segist hlynnt því að vernda hús í miðbænum en það verði að gera á þeim stöðum það sem það henti. Fram hefur komið í fréttum að Húsafriðunarnefnd hyggist leggja það til við menntamálaráðherra að húsin að Laugavegi 4 og 6 verði friðuð. Vísar nefndin meðal annars til þess að flutningur húsanna rýri götumyndina. Til stóð að rífa húsin en eigendur lóðarinnar, eignarhaldsfélagið Kaupangur, samþykktu að veita borginnni tveggja vikna frest til að flytja húsin burt. Það var áður en Húsafriðunarnefnd gaf út að hún vildi friða húsin. Eigendurnir, sem hyggjast reisa hótel á reitnum, segja að með því geti skapast skaðabótaábyrgð sem almenningur geti þurft að greiða úr sínum vasa. Í samtali við Vísi segir Svava Johansen, forstjóri NTC, sem rekur meðal annars verlsunina Sautján á Laugaveginum, alveg fáránlegt að hafa húsin áfram á sínum stað og bendir á að verið sé að byggja upp verslunargötu í miðbænum. „Mér finnst sjálfsagt að vernda og endurgera hús á þeim stöðum þar sem það hentar og þar sem þau falla vel inn í heildina en ef miðbærinn á að vera samkeppnishæfur verða svona hús að fara," segir Svava og bendir á að húsin séu lítil og því rúmist engin alvöru starfsemi í þeim. Henni finnist í góðu lagi ef húsin verði flutt og þeim komið fyrir í Hljómskálagarðinum eða á Árbæjarsafninu. Svava bendir á að uppbygging gamalla húsa í miðborginni hafi tekist vel á sumum stöðum, til að mynda í Aðalstræti og það sé gaman sjá. Aðspurð hvort hún telji að meirihluti verslunarrekenda við Laugaveg deili skoðun hennar á því að húsin beri að fjarlægja segist Svava telja svo vera. „Þeir sem ætla að halda áfram verslunarrekstri næstu árin eru á þessari skoðun og þar í hópi eru bæði fagurkerar og rekstrarmenn," segir Svava.
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Sjá meira