Þarf að virkja forsendunefnd kjarasamninga 25. mars 2008 14:25 Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ. MYND/Valli
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir Íslendinga standa frammi fyrir efnahagslegri vá og telur að virkja þurfi forsendunefnd kjarasamninga og samráðsvettvang stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins til þess að ræða þá stöðu sem upp er komin í íslensku efnahagslífi. Eins og fram kom í fréttum í morgun hækkaði Seðlabankinn stýrivesti um 1,25 prósentustig og eru þeir nú 15 prósent. „Ég verð að viðurkenna að það kom okkur í opna skjöldu að þeir skyldu hækka vextina svo mikið," segir Gylfi en bendir á að sé ákvörðunin sett í samhengi við atburðarás undanfarinna daga sé sú hún skiljanlegri. Gylfi bendir á að við lækkun krónunnar í síðustu viku hafi fyrirtækin í landinu verið ótrúlega snögg að hækka verðið. Bendir hann á að olíufélögin hafi hækkað verð á eldsneyti og þá hafi forsvarsmenn matvöruverslana, nú síðast í morgun, boðað allt að 20 prósenta hækkun á matvöru. „Það hefur blásið lífi í verðbólguvæntingar og þegar við bætist að ríkisstjórnin hélt sérstakan blaðamannafund í síðustu viku til þess að upplýsa að ekkert væri hægt að gera þá verður þetta skiljanlegra," segir Gylfi og bendir á að meginhlutverk Seðlabankans sé að vinna gegn verðbólgu. Hann segir ASÍ hafa áhyggjur af því að 15 prósenta stýrivextir geti gengið í íslensku samfélagið. „Þetta hefur styrkt krónuna en langtímaáhrifin gætu orðið þau að setja klossbremsu á atvinnulífið og það er verulega hætta á að það bresti á samdráttur og miklar uppsagnir í atvinnulífinu," segir Gylfi. Vill svör um það hver hafi staðið á bak við gjaldeyrisviðskipti Hann segir enn fremur brýnt að fá svar við því hverjir hafi staðið á bak við viðskipti á gjaldeyrismarkaði í síðustu viku. Fullyrt sé að það séu bankarnir án þess að það hafi fengist staðfest en ASÍ geti ekki sætt sig við að aðilar á fjármálamarkaði séu að taka skammtímastöðu gagnvart krónunni til þess að bæta eigin stöðu. „Við munum ekki sætta okkur við að byrðarnar lendi allar á launafólki," segir Gylfi. Þá segir Gylfi ljóst að virkja þurfi forsendunefnd kjarasamninga og sömuleiðis að kalla saman sameiginlegan vettvang ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins sem stofnaður hafi verið í fyrrasumar. Að þeim vettvangi eiga bæði Samtök atvinnulífsins og samtök launþega í almenna og opinbera geiranum aðild. „Við stöndum frammi fyrir efnahagslegri vá og við verðum að skoða hvernig stjórnvöld geta greitt úr þessari stöðu og til þess þarf samráð," segir Gylfi.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Sjá meira