Innlent

Átta árangurslaus fjárnám hjá formanni bæjarráðs

SB skrifar
Sólin sest í Vogum.
Sólin sest í Vogum. Mynd/Valgarður

Sýslumaðurinn í Keflavík hefur gert átta árangurslaus fjárnám hjá Herði Harðarssyni, formanni bæjarráðs í Vogum. Hörður segist ætla að axla ábyrgð ef málið fer í gjaldþrot. Hann segir heift og persónuleg illindi hlaupin í deilur bæjarstjórna Voga.

"Ég er að vinna í mínum skuldamálum. Ég geri mér fyllilega grein fyrir alvarleika málsins og veit að ef þetta fer lengra þá er ég ekki hæfur til að gegna mínu embætti," segir Hörður.

Hörður er sjálfstæður atvinnurekandi. Hann segir fjárnámin tengjast skattamálum. Þetta séu "gamlar syndir".

Vísir.is leitaði til Sambands íslenskra sveitarfélaga eftir upplýsingum um hvaða reglur gilda um hæfi bæjarstjórnarfulltrúa þegar gjaldþrot ber að dyrum. "Þú tekur ekki mannréttindi af mönnum þó þeir verði gjaldþrota, það hefur ekki áhrif á hæfi manna til að gegna störfum í bæjarstjórn," sagði Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri hjá Hag- og upplýsingasviði.

Hörður segist hins vegar ætla að axla fulla ábyrgð ef tjöldin falla. Hann er ekki bara bæjarfulltrúi heldur einnig formaður bæjarráðs.

Fréttir af illdeilum í bæjarstjórn Voga hafa verið fyrirferðarmiklar síðustu daga. Hörður er fulltrúi meirihluta E-listans. Á síðasta bæjarstjórnarfundi krafðist Inga Sigrún Atladóttir, bæjarfulltrúi H-listans, að Hörður Harðarson, bæjarfulltrúi E-listans, yrði víttur vegna ásakana á hendur henni.

"Manni finnst undarlegt að upplýsingar um mín persónulegu fjármál séu komin í fjölmiðla," segir Hörður sem neitaði því í DV í dag að bæjarstjórnin logaði í illdeilum. Hann sagði að í Vogunum skini sól í heiði.

Nú játar Hörður því að kannski sé sólin í Vogunum sest. "Það virðist komin heift og persónuleg illindi í bæjarstjórnina," segir hann.


Tengdar fréttir

Bæjarstjórn Voga logar í illdeilum

Inga Sigrún Atladóttir, fulltrúi H-listans í bæjarstjórn Voga, sakar forseta bæjarstjórnar um spillingu. Hún segir mágkonu forsetans hafa komið í veg fyrir að byggt yrði félagsheimili fyrir kvenfélag bæjarins þrátt fyrir vilja meirihluta byggingarráðs. Inga Sigrún er sjálf brigsluð um óeðlileg vinnubrögð.

Ekki illdeilur heldur smásmugulegt skítkast

Bæjarfulltrúar E-listans í Vogum saka Ingu Sigrúnu Atladóttir, bæjarfulltrúa H-listans, um ósannsögli. Í viðtali á visi.is í gær sakaði Inga Sigrúnu forseta bæjarstjórnar Voga um að hygla mágkonu sinni í E-listanum. Mágkonan segir ástandið í bæjarstjórn Voga ekki illdeilur heldur smásmugulegt skítkast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×