Kynjaskipt leikföng í barnaboxum McDonald’s Nanna Hlín Halldórsdóttir skrifar 9. júní 2008 14:04
Nú þegar Evrópumótið í fótbolta er hafið eru komin ný leikföng í barnabox McDonald´s skyndibitakeðjunnar, fóboltamyndir af leikmönnum í keppninni. Myndirnar eru hins vegar ætlaðar strákum en fyrir stúlkurnar eru leikföng tengd dansi. McDonald's á Íslandi fær leikföngin að utan en segir þetta fara eftir því sem flestir krakkarnir vilja. Helena Ólafsdóttir, þjálfari KR í Landsbankadeild kvenna telur að það ætti að vera sömu leikföng eða að minnsta kosti val. Magnús Ögmundsson, framkvæmdastjóri Lystar ehf., tjáði Vísi að í 70% tilvika væru leikföng í barnaboxum kynjaskipt. Hann segir að ekki sé mikið um að stelpur biðji um strákaleikföng í staðinn en að það komi fyrir og það sé alveg sjálfsagt að láta þær fá þau leikföng. Hann hafi gert ráð fyrir að í kringum Evrópumótið myndu einhverjar stúlkur biðja meira um fótboltamyndirnar og því pantað meira af þeim en stelpuleikföngunum. McDonalds á Íslandi fær leikföng sín að utan þannig að allir flestir krakkar í Evrópu fá sams konar leikföng. „Það er bara svoleiðis að strákarnir vilja bílanna og stelpurnar dúkkurnar. Fyrir tveimur árum voru í boði fótboltaleikföng fyrir bæði kynin en því var líklegast ekki vel tekið í Evrópu því nú var ákveðið að hafa önnur leikföng fyrir stelpur í stað fótboltamynda." segir Magnús. Hann segir að þetta sé spurning um hvað flestir vilja en að það sé ekkert mál að taka tillit til sérbeiðna. Vísir leitaði eftir viðbrögðum Helenu Ólafsdóttur, þjálfara KR í Landsbankadeild kvenna. Hún taldi að það væri snjallt að hafa val þannig að þær gætu átt kost á fótboltamyndunum án þess að þurfa að biðja sér um það. Um málið sagði hún ,,Áhugasvið stúlkna er náttúrulega jafn fjölbreytt og hjá strákum og það getu vel verið að margar stelpur langi í svona myndir." Hún tók það þó fram að þetta gæti farið eftir aldri barna, þau yngstu hefðu ekki jafn mótaðar skoðanir en hins vegar hafi verið mikill aukning meðal stelpna að æfa fótbolta. Þær séu byrjaðar að spá í fotboltann mjög ungar og þekki gjarnan mörg nöfn á þeim fótboltamönnum sem keppi á stórmótum.
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Innlent Fleiri fréttir Kristrún hafi ekki lagt hjarta og sál í baráttuna Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent