Innlent

Vélhjólamaður á batavegi

Líðan mannsins sem slasaðist í mótorhjólaslysi á Sæbraut í gær er stöðug og er hann á batavegi.

Slysið varð skammt vestan við gatnamót Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar um þrjúleytið í gær. Fólksbifreið af gerðinni Volkwagen Passat og svart bifhjól, sem voru á leið í vesturátt, lentu saman með þeim afleiðingum að ökumaður bifhjólsins kastaðist af hjólinu.

Lögregla lýsir eftir vitnum af atvikinu og biður þau um að hafa samband í síma 444-1000. Þá hefur drengurinn sem brenndist í sprengingu í húsbíl í Grindavík í byrjun mánaðarins verið útskrifaður af gjörgæsludeild Landspítalans og er hann á batavegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×