Ráðherra boðar gangskör í geðheilbrigðismálum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 9. júní 2008 12:24 MYND/Gunnar V. Andrésson
Geðheilbrigðismál verða tekin til sérstakrar endurskoðunar þegar starfshópur verður settur á laggirnar í sumar. Munu málefni réttargeðdeildarinnar á Sogni falla undir þá endurskoðun. Þetta sagði Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra í samtali við Vísi. Brot Magnúsar Skúlasonar, geðlæknis á Sogni, sem vikið hefur verið frá störfum fyrir að svíkja út lyf í nafni skjólstæðinga sinna, hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum undanfarið og hafa heilbrigðisráðherra og landlæknir fundað um málið. Ósáttur við ummæli Kristófers Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir kvaðst verulega ósáttur við ummæli Kristófers Þorleifssonar, formanns Geðlæknafélags Íslands, í sjónvarpsviðtali þar sem hann hafi haldið því fram að Magnús hafi starfað á Sogni eftir að hafa verið sviptur leyfi til að ávísa róandi lyfjum og svefnlyfjum. „Hann var alls ekkert sviptur því leyfi, hann var sviptur leyfi til að skrifa út eftirritunarskyld lyf. Í þeim hópi eru örvandi lyf og örvandi lyf eru ekkert notuð á Sogni. Við vorum mjög óhressir með þetta. Hann sagði að þetta yrði leiðrétt í sjónvarpinu en það hefur engin leiðrétting komið," sagði Matthías. Hann sagði enn fremur að verið væri að ráða nýjan geðlækni á Suðurlandi sem væru mjög góð tíðindi. Erfitt hefði verið að manna geðlæknastöður utan Reykjavíkur fram til þessa. Einnig væri búið að ráða nýjan iðjuþjálfa á Sogn sem væri ákaflega mikilvæg staða þar. Matthías segir hollenska geðlækninn John Donne deNit hafa borið hitann og þungann af starfinu á Sogni og beri embættið fullt traust til hans.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Sjá meira