Sigurganga Jolene heldur áfram 30. október 2008 00:01 Dóra Takefusa segir þær stöllur ánægðar með tilnefninguna, en búast ekki við verðlaunum þar sem Jolene er minnsti staðurinn af þeim sem eru tilnefndir.
Jolene, bar Dóru Takefusa og Dóru Dúnu, er annað árið í röð tilnefndur til Byens bedste-verðlaunanna í Kaupmannahöfn. „Það er mikill heiður að vera tilnefndar og okkur þykir vænt um það," segir Dóra Takefusa, en staður hennar og Dóru Dúnu Sighvatsdóttur, Jolene, er tilnefndur til Byens bedste-verðlaunanna sem skemmtilegasti staðurinn. Þær eru ekki alls ókunnar verðlaununum því í fyrra voru þær tilnefndar fyrir kúltíveraðasta framtakið. „Þar voru stórir leikhússtjórar líka tilnefndir, svo við bjuggumst ekki við því að vinna. Við fengum samt óvænt verðlaun þegar staðurinn Vega var valinn skemmtilegasti klúbburinn, því eigendurnir gengu niður af sviðinu og sögðust vilja afhenda Jolene verðlaunin þar sem þeim fyndist það svalasti staðurinn í Kaupmannahöfn," útskýrir Dóra. „Við erum ekki að búast við neinu á hátíðinni í ár því við erum langminnsti staðurinn. Okkur þykir samt vænt um að vera tilnefndar, sérstaklega á þessum tíma þegar Íslendingar hafa verið gagnrýndir fyrir útrás þó svo að okkar útrás sé ekkert í líkingu við það sem hefur verið," bætir hún við og segist ánægð með þá jákvæðu umfjöllun sem staðurinn hefur fengið úti. „Við Dóra finnum ekki fyrir því að litið sé niður á okkur. Blöðin eru enn þá áhugasöm að skrifa um okkur og við vorum í forsíðuviðtali hjá Berlingske Tidende fyrir stuttu. Ef ég er spurð út í ástandið á Íslandi segi ég að þetta verði erfitt, en Íslendingar eigi eftir að lenda á fótunum," segir Dóra að lokum. Hægt er að taka þátt í kosningunni á byensbedste.aok.dk, en henni lýkur í byrjun nóvember. alma@frettabladid.is
Mest lesið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira