Sagður hafa yfirtekið Lækjartorg með skætingi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 10. júlí 2008 16:30 Steinþór Árnason, eigandi Segafredo. MYND/Jóhannes Kr.
Steinþór Árnason, sem rekur kaffihúsið Segafredo við Lækjartorg, segist gáttaður á framkomu lögreglumanna sem heimsóttu hann um tvöleytið í dag. „Ég fékk bráðabirgðaleyfið í dag fyrir 20 borðum fyrir utan staðinn. Á sama tíma og ég er að skrifa þakkarbréf til lögreglustjóra koma tveir lögreglumenn á staðinn og segja mér hreinlega að þeir botni ekkert í mér," útskýrir Steinþór. Lögreglumennirnir voru að sögn Steinþórs ekki ánægðir með þá háttsemi hans að hafa fleiri borð úti en honum væri heimilt. „Þeir sögðu að ég væri með dónaskap og óvirðingu við íbúa Reykjavíkur og bættu því við að ég væri að yfirtaka torgið með skætingi," sagði Steinþór og sór og sárt við lagði að hann hefði ætíð gætt þess í hvívetna að ganga vel um torgið og hafa borð staðarins ekki fyrir gangandi vegfarendum eða öðrum sem leið eiga um torgið. „Borgarfulltrúar, meðal annars Jakob Frímann, hafa hælt mér fyrir umgengni mína á torginu og hvað ég er duglegur við að setja borð út og þjónusta viðskiptavini frá klukkan átta á morgnana," segir Steinþór sár. Hann viðurkennir þó að bráðabirgðaleyfið gildi ekki fyrir þann borðafjölda sem hann hafi haft úti í dag, það sé einungis vilyrði fyrir þeim borðafjölda sem þar greini. Það sem stingi hann hins vegar séu þau ummæli lögreglumannanna að hann muni aldrei fá leyfi fyrir fleiri borðum vegna þess að hann sé með dónaskap við borgarbúa og sé að yfirtaka torgið. „Ég er skilningsríkur maður en botna ekki í því af hverju hlutirnir þurfa að vera svona erfiðir," sagði Steinþór að lokum. Ekki náðist í þann fulltrúa lögreglustjóra sem annast veitingu leyfa til borðafjölgunar.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira