Innlent

Ekki meiri tíma í Lissabon-sáttmálann

Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands í góðu gamni.
Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands í góðu gamni.

Forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy varaði þing Evrópusambandsins við því að eyða meiri tíma í samningaviðræður um Lissabon-sáttmálann. Hann telur að það þurfi að varast að Evrópusambandið verði ekki aðgerðaleysi að bráð. Hann sagði að neitun Íra á sáttmálanum mætti ekki leiða til ,,einhvers konar stofnanakenndrar sápuóperu."

Frakkland tók við 6 mánaða formennsku í ESB þann 1.júlí síðastliðinn. Frakkar stefna að því að stinga upp á einhverri lausn fyrir ESB fyrir enda þessa árs. Sarkozy telur það vera skyldu Evrópu að aðhafast núna í stað þess að bíða í aðgerðaleysi.

Þrátt fyrir neitun Íra hefur Frakkland mikinn metnað fyrir ESB, þeir áætla að ná fram samningi varðandi innflytjendur innan ESB og einnig varðandi takmörk í minnkun gróðurhúsalofttegunda.

Sarkozy lagði áherslu á að engin þjóð yrði skilin eftir í þróun Evrópusambandsins. Evrópusambandið væri fjölskylda 27 þjóða sem þyrfti að halda saman.

Þetta kemur fram á fréttavef BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×