Bílastæðaskussar varaðir við 10. júlí 2008 11:07 Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar. „
Barnavagninn minn á ekki að þurfa að fara út á götu," stendur á miða sem Bílastæðasjóður hefur látið gera. Ætlunin er að festa miðann á bifreiðar sem loka gangstéttum fyrir foreldrum með barnavagn og öðrum gangandi vegfarendum. Ökumenn hafa undanfarin ár lagt æ fleiri svæði undir bifreiðar sínar í Reykjavík. Víða má sjá bifreiðum lagt upp á gangstéttar og grasflötum en það skapar hættu fyrir gangandi vegfarendur sem þurfa oft á tíðum að fara út á götu til að komast leiðar sinnar. Í sumum tilfellum hefur þessi umgengni bílstjóra skapað hættu fyrir börn. Stöðuverðir Bílastæðasjóðs og lögregluþjónar geta lagt stöðubrotsgjald á bifreiðar sem standa ólöglega. Vandinn er hins vegar það viðamikill að Bílastæðasjóður ákvað að gefa út miða með vinsamlegum ábendingum í nokkrum útgáfum. Einn miðinn segir til um að hér hafi barn ekki komist leiðar sinnar á gangstéttinni. Annar að bifreið hafi hindrað mann í hjólastól og á honum stendur. „Við viljum fá fleiri í lið með okkur til að berjast gegn slæmri umgengni á bílum í borginni. Æ oftar má sjá ófatlaða bílstjóra leggja í stæði fatlaðra og við þurfum að venja fólk af þessu ósið, " segir Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs, í fréttatilkynningu.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira