Innlent

Afli íslenska flotans jókst í fyrra

Á árinu 2007 var afli íslenskra skipa tæp 1.396 þúsund tonn, 73 þúsund tonnum meiri en árið 2006. Þetta kemur fram í ritinu, Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2007, sem Hagstofan gefur út.

Aflaverðmæti var rúmir 80 milljarðar króna og jókst um 5,4% frá fyrra ári. Stærsti hluti afla íslenskra fiskiskipa var unninn á Austurlandi, enda er stórum hluta uppsjávaraflans landað þar. Aflakaupendur á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu keyptu mestan afla, að andvirði um 14,5 milljarða hvor.

Stærsti hluti botnfiskaflans var unninn á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum eða rúm 40%. Af þorskaflanum fór mest í salt en stærstur hluti ýsuaflans var frystur í landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×