Framleiða eldsneyti úr matvælafitu og olíu 10. júlí 2008 10:30
Líforka, nýtt fyrirtæki í framleiðslu eldsneytis hér á landi, hefur þróað aðferð til að endurnýta alla þá fitu og olíu sem til fellur hjá matvælaframleiðendum á Íslandi. Um er að ræða til dæmis matarolíu á matsölustöðum, hjá fiskvinnslu- og kjötiðnaðarfyrirtækjum og fitu í sláturhúsum. Þessum afurðum er annars fargað. „Vonir okkar standa til að endurnýta alla þá fitu og olíu sem til fellur á Íslandi, bæði harða og mjúka. Það hafa verið gerðar nokkrar vel heppnaðar tilraunir við að keyra þetta á bifreiðum og nú stendur til að útvíkka það og gera kannanir í stærri skala sem taka munu til allrar lífrænnar úrgangsolíu sem fellur til á Íslandi," segir Ívar Örn Lárusson, annar eigandi fyrirtækisins, í fréttatilkynningu sem send var fjölmiðlum. Fyrirtækið er í eigu hans og Arnórs Jónssonar. Í fréttatilkynningu frá þeim segir að helstu kostir þessa svokallaða lífdísels séu betri smureiginleikar sem gefi betri endingu véla. Þannig gangi lífdísel á óbreyttar vélar og ábyrgð bifreiðaframleiðenda haldi sér. Einnig minnki útblástur véla og þær mengi þar af leiðandi minna. ,,Þannig minnkar útblástur Íslendinga á gróðurhúsaloftegundum og með tilkomu koltvísýringskvóta mun notkun lífdísels bæta stöðu okkar til muna á bæði innlendum og erlendum vettvangi," segir Ívar. Unnið er að arðsemismati og þróun fullburða verksmiðju til að vinna verkefnið áfram í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur og Háskólann í Reykjavík, en bæði fyrirtækin hafa komið að verkefninu frá upphafi.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira