Innlent

Þrennt slasaðist við mótorkross-keppni

Mynd: Ellert/Vf.is
Mynd: Ellert/Vf.is

Þrennt slasaðist við mótorkross-keppni í Sólbrekkubraut, við Reykjanesbraut í dag. Öll voru þau flutt á sjúkrahús með sjúkrabifreiðum til aðhlynningar.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni munu þau öll hafa fallið af hjólum sínum. Um var að ræða 14 ára stúlku sem var með áverka á mjöðm, 22 ára mann sem var sennilega handleggsbrotinn og 27 ára komu sem kenndi til í baki.

Að auki hafði lögreglan spurnir af einum manni að auki sem slasaðist en sá kom sér sjálfur undir læknishendur.

Þá var ölvaður karlmaður handtekinn í dag í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann hafði verið erfiður í samskiptum við starfsmenn og ferðamenn í flugstöðinni. Maðurinn gistir fangageymslu þar til af honum rennur áfengisvíman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×