Vill stoppa þorskniðurskurð og veiða 220 þúsund tonn árlega 7. júní 2008 09:35
Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslyndaflokksins sagði í ræðu á fundi Landsráðs flokksins á Laugavatni í morgun að nú þyrfti að segja stopp við þorskaflaniðurskurði ríkisstjórnarinnar. Allt stefnir í að hámarksafli á þorski verði 130 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári, annað fiskveiðiárið í röð, eftir að Hafrannsóknarstofnunin kynnti mat sitt á stofninum á dögunum. Guðjón Arnar segir það minnsta þorskafla á Íslandsmiðum í 98 ár. Hann leggur til að heimilað verði að veiða 220 þúsund tonn á hverju fiskveiðiári næstu þrjú árin og eftir það verði árangurinn metinn. Guðjón Arnar spáir því að hann verði betri en árangurinn af fiskveiðistjórnuninni frá því kvótakerfið kom til sögunnar árið 1984. Á þessum þremur árum verði öll leiga og sala á kvóta milli útgerða bönnuð og lög sett um að ríki og sveitarfélög megi ein leigja kvóta til útgerðar. Þá útfærir formaðurinn nánar hvernig þessum 220 þúsund tonnum verði skipt milli aflahlutdeildarkerfisins, byggðapotts og línuívilnunar. Meðal annars verði 40 þúsund tonn boðin upp af ríkissjóði og sveitarfélögum, sem skiptist með ákveðnum hætti milli ákveðinna tegunda skipa og byggðarlaga. Þá leggur formaður Frjálslynda flokksins til að loðnuveiðar verði bannaðar næstu tvö árin, nema ef veiðistofninn mælist yfir 800 þúsund tonnum. Guðjón Arnar segir nóg komið af því sem hann kallar pólitíska fiskifræði og stjórnarstefnu um samþjöppun veiðiheimilda á fáar hendur, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið að ráða síðast liðinn 17 ár.
Mest lesið Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Innlent Fleiri fréttir Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Sjá meira