Telja að glæpum hafi fjölgað 11. júlí 2008 18:40
Mikill meirihluti landsmanna telur að glæpum hafi fjölgað á Íslandi á síðustu fimm árum. Þetta kemur fram í nýrri könnun fréttastofu Stöðvar 2 sem sýnir jafnframt að flestir telja fjölgunina tengjast fíkniefnaneyslu og fjölgun útlendinga. Könnunin var gerð dagana 3. - 9. júlí. Úrtakið var rúmlega ellefu hundruð manns á aldrinum 16-75 ára af landinu öllu. Liðlega helmingur svaraði. Fólk var spurt hvort það teldi að glæpum hefði fjölgað, fækkað eða staðið í stað á síðustu fimm árum. Í ljós kom að ríflega áttatíu og eitt prósent töldu að glæpum hefði fjölgað, rúmlega sautján prósent að þeir hefðu staðið í stað en aðeins eitt og hálft prósent að þeim hefði fækkað. Fleiri konur en karlar sögðu að glæpum hefði fjölgað eða 87 prósent á móti tæplega 76 prósent karla. Þegar spurt var hver fólk teldi að meginástæðan væri fyrir fjölgun glæpa kom í ljós að langflestir, eða yfir helmingur svarenda, töldu það vera vegna fíkniefnaneyslu eða aukinnar fíkniefnaneyslu eða 55,5 prósent. Næst flestir nefndu fjölgun útlendinga sem meginástæðu fjölgunar glæpa eða tæp 36 prósent. Aðrar ástæður sem nefndar voru eru aga og virðingarleysi, ónóg löggæsla eða skortur á fjárveitingu til löggæslu og skipuleg glæpastarfsemi. Þrátt fyrir að flestir telji glæpum hafa fjölgað á síðustu árum er það ekki í samræmi við tölur ríkislögreglustjóra. Í tölfræðiskýrslu embættisins sem sýnir fjölda afbrota á síðasta ári sést að hegingarlagabortum hefur fækkað á síðustu fimm árum. Þannig voru hegningarlagabrot árið 2007 svipuð og árið á undan. Nokkuð fleiri en árið 2005 og færri en árin 2003 og 2004. Rétt er þó að taka fram að tölurnar frá síðasta ári eru bráðabirgðatölur.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira