Vonar að mál Ramses verði afgreitt sem fyrst Nanna Hlín skrifar 11. júlí 2008 11:43 Katrín Theódórsdóttir, lögfræðingur Paul Ramses.
Katrín Theódórsdóttir, lögfræðingur Paul Ramses hefur ekkert heyrt frá dómsmálaráðuneytinu eftir að hafa lagt inn kæru á miðvikudaginn. Hún vonar að mál Ramses verði afgreitt sem fyrst vegna sérstaka aðstæðna í því. Hún segist ekki þekkja nein fordæmi fyrir því að semja við Útlendingastofnun eins og Atli Gíslason, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar- Græns framboðs, stakk upp á. „Þetta mál er þess eðlis að það þarfnast ekki mikillar rannsóknar vegna þess að á þessu stigi er eingöngu verið að ákveða hvort við séum tilbúin að taka þessa umsókn fyrir hérna heima á grundvelli mannúðarsjónarmiða, vegna barns og konu hérna heima og tengsl Ramses við Íslands,"segir Katrín. Að sögn Katrínar byggist það því fyrst og fremst á viljanum hjá ráðherra hvenær niðurstaða komi varðandi kæruna og á því hvernig hann meti málið. „Rannsóknararvinnan hefst svo fyrst hjá Útlendingastofnun, rannsókn á því hvort að hann sé í þessari þörf fyrir vernd sem hann segist vera í og allt bendir til að hann sé í. Það er ekki verið að fara fram á meira en að málið verði tekið fyrir hérna heima og fyrir það þarf enga rannsókn. Aðalkrafan felst náttúrulega í því að fyrri ákvörðun verði dæmd ógild vegna þess hvernig staðið var að ákvörðuninni." Um uppástungu Atla Gíslasonar í viðtali við Vísi á þriðjudaginn að allir aðilar málsins setjist niður og semji segir Katrín „Ég þekki engin fordæmi fyrir því að semja við Útlendingastofnun. Hinn eðlilegi farvegur er kæra til æðra stjórnvalds sem í þessu tilviki er dómsmálaráðherra."
Mest lesið Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Fleiri fréttir Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Sjá meira