Innlent

Ný göng í Ólafsfjarðarmúla

Líkur eru á að gera þurfi ný göng í gegnum Ólafsfjarðarmúla, aðeins sautján árum eftir að Múlagöng voru vígð. Ný göng kosta um fjóra milljarða króna.

Sérfræðingar í vegavinnu sem Stöð 2 hefur rætt við segja best úr því sem komið er að gera ný göng í gegnum Ólafsfjarðarmúla. Tvöföldun þeirra ganga sem fyrir eru, sé óheppileg að því leyti að núverandi göng liggi of utarlega í Múlanum, yst á Tröllaskaganum. Snjóflóðahætta að austan geri mönnum lífið leitt skammt frá gangamunnanum og því þurfi að færa nýju göngin inn fyrir Sauðanesið.

Múlagöng eru 3.400 metrar að lengd og sýna alþjóðlegir staðlar að umferð er þegar orðin of mikil í gegnum þau. Með tilkomu Héðinsfjarðarganga verður sprenging og umferðarkrísa eins og bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar gagnrýndi í frétt Stöðvar 2 í gær.

Birgir Guðmundsson umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Norðurlandi segir það þumalputtareglu að hver grafinn jarðgangakílómetri kosti um einn milljarð króna þannig að ný Ólafsfjarðargöng, lengri en núverandi göng, gætu kostað um 4 milljarða króna. Hann segir málið ekki komið á áætlun og menn séu tiltölulega nýfarnir að skoða þennan vanda, en tekur undir með Svanfríði Jónasdóttur bæjarstjóra að bregðast þurfi við hið snarasta. Ekkert vit sé í að breikka núverandi göng heldur séu ný göng nauðsynleg.

Ólafsfjarðargöng voru vígð í mars 1991, og hafa því orðið úrelt á aðeins 17 árum. Spurður hvort skammsýni hafi ráðið för segir umdæmisstjóri Vegagerðarinnar að kröfurnar hafi gjörbreyst á skömmum tíma til öryggis og útlits ganga sem þessara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×