Ný göng í Ólafsfjarðarmúla 8. apríl 2008 19:11
Líkur eru á að gera þurfi ný göng í gegnum Ólafsfjarðarmúla, aðeins sautján árum eftir að Múlagöng voru vígð. Ný göng kosta um fjóra milljarða króna. Sérfræðingar í vegavinnu sem Stöð 2 hefur rætt við segja best úr því sem komið er að gera ný göng í gegnum Ólafsfjarðarmúla. Tvöföldun þeirra ganga sem fyrir eru, sé óheppileg að því leyti að núverandi göng liggi of utarlega í Múlanum, yst á Tröllaskaganum. Snjóflóðahætta að austan geri mönnum lífið leitt skammt frá gangamunnanum og því þurfi að færa nýju göngin inn fyrir Sauðanesið. Múlagöng eru 3.400 metrar að lengd og sýna alþjóðlegir staðlar að umferð er þegar orðin of mikil í gegnum þau. Með tilkomu Héðinsfjarðarganga verður sprenging og umferðarkrísa eins og bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar gagnrýndi í frétt Stöðvar 2 í gær. Birgir Guðmundsson umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Norðurlandi segir það þumalputtareglu að hver grafinn jarðgangakílómetri kosti um einn milljarð króna þannig að ný Ólafsfjarðargöng, lengri en núverandi göng, gætu kostað um 4 milljarða króna. Hann segir málið ekki komið á áætlun og menn séu tiltölulega nýfarnir að skoða þennan vanda, en tekur undir með Svanfríði Jónasdóttur bæjarstjóra að bregðast þurfi við hið snarasta. Ekkert vit sé í að breikka núverandi göng heldur séu ný göng nauðsynleg. Ólafsfjarðargöng voru vígð í mars 1991, og hafa því orðið úrelt á aðeins 17 árum. Spurður hvort skammsýni hafi ráðið för segir umdæmisstjóri Vegagerðarinnar að kröfurnar hafi gjörbreyst á skömmum tíma til öryggis og útlits ganga sem þessara.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira