Ríkið gerir tilkall til umhverfistákns Akureyrar 8. apríl 2008 12:15
Ríkið, undir forystu Árna Mathiesen fjármálaráðherra, hefur gert tilkall í eitt helsta umhverfistákn Akureyrar, fjallið Súlur. Heimamenn hyggjast grípa til varna. Stjórn Landssamtaka landeigenda á Íslandi hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að nýjustu þjóðlendukröfur ríkisvaldsins, sem birtar voru 28. mars frá Fnjóská að Blöndu á Norðurlandi, séu ekki í neinu samræmi við yfirlýsingar Árna M. Mathiesens fjármálaráðherra á aðalfundi samtakanna 14. febrúar 2008. Stjórnin fjallaði um málið fyrir helgi og furðar sig yfir því að ríkisvaldið skuli enn ætla sér að vaða freklega inn á þinglýstar landareignir sveitarfélaga og einstaklinga og hirða þær af lögmætum eigendum sínum. Það sem mesta athygli hefur vakið á Akureyri í þessum kröfum er að ríkið reyni nú að slá eign sinni á fjallið Súlur. Súlur eru eitt helsta einkennistákn bæjarins og er víst að það slagar nálægt hjartastoppi hjá sumum Akureyringum ef taka á fjallið þeirra af þeim. Þá gerir ríkið einnig tilkall til nokkurs hluta af Glerárdal sem og hluta Hlíðarfjalls en þar er helsta skíðasvæði Norðlendinga. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri segist vera að skoða málið ásamt bæjarlögmanni. Hún vill ekki gefa yfirlýsingu að svo stöddu.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira