Innlent

Á gjörgæslu eftir fjórhjólaslys

MYND/GVA

Ung stúlka liggur nú á gjörgæsludeild Landspítalans með alvarlega höfuðáverka eftir að hún slasaðist ásamt móður sinni þegar þær voru á fjórhjóli í Reynishverfi vestan við Vík fyrr í dag.

Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli eru tildrög slyssins ekki ljós en þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að sækja mæðgurnar. Sjúkrabíll ók með þær til móts við þyrluna sem lenti rétt við Hvolsvöll. Þaðan var flogið til Reykjavíkur og lenti þyrlan við Landspítalann um þrjúleytið.

Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild eru mæðgurnar enn til rannsóknar en stúlkan, sem er fimm ára, hefur verið flutt á gjörgæsludeild vegna áverka sinna. Móðir hennar mun vera minna slösuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×