Hæstu æfingagjöldin í Borgarnesi 11. júlí 2008 10:42 Frá Borgarnesi
Kostnaður sem fylgir íþrótta- og tómstundaiðkun barna og unglinga getur vegið þungt í heimilisbókhaldi hjá barnafjölskyldum. Fótboltinn er með vinsælli íþróttum og er stundaður um allt land. Neytendasamtökin ákváðu að kanna árgjald fyrir börn í 4. flokki og skoða hvaða áhrif íþróttastyrkur sveitarfélaga hefur á æfingagjöldin. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu neytendasamtakanna. Þar segir ennfremur: „Haft var samband við 29 íþróttafélög víðs vegar um landið og árgjaldið fyrir 4. fl. (börn fædd 1994 og 1995) kannað. Algengast er að árgjaldið sé á bilinu 30.000 - 40.000 kr. Lægst er gjaldið 25.000 kr. og hæst 50.400 kr. Næstum öll félög veita systkinaafslátt en misháan. Ef styrkir sveitarfélaga eru dregnir frá æfingagjöldum kemur í ljós að lægstu gjöldin greiða iðkendur í þeim sveitarfélögum sem veita hæstu styrkina. Æfingagjöld eru því lægst í Grindavík (ekkert gjald), Hafnarfirði, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Reykjavík og í Mosfellsbæ. Þar fyrir utan eru lægstu æfingagjöldin hjá Austra á Eskifirði og Leiftri á Siglufirði 25.000 kr. Árgjaldið hjá Snæfelli er 30.000 kr. en það veitir iðkendum rétt á að stunda allar aðrar íþróttir sem Snæfell býður upp á. Hæst er árgjaldið hjá Skallagrími 50.400 kr., KA 49.000 kr. og ÍA 47.700 kr. Afar erfitt er að gera raunhæfan verðsamanburð og því ber ekki að líta á þessa samantekt sem eiginlega verðkönnun. Aðstæður félaganna eru ólíkar, sum félög æfa í yfirbyggðum íþróttahúsum á veturna á meðan önnur æfa undir berum himni allt árið. Misjafnt er hversu margar æfingar eru í boði, t.d. æfa sum félög alla virka daga á sumrin en önnur þrisvar í viku. Laun þjálfara eru mishá eftir menntun og reynslu og þá er einnig misjafnt hvernig gjöldin eru innheimt. Í sumum tilfellum verður að greiða árgjald en í öðrum er hægt að greiða fyrir hvern mánuð. Einnig er rétt að benda á að sveitarfélög styrkja íþróttafélög fjárhagslega en mismikið þó. Það gæti einnig skýrt mun á æfingargjöldum." Einar Þorvaldur Eyjólfsson formaður knattspyrnudeildar Skallagríms sendi vísi athugasemd við útreikninga neytendasamtakanna. Hann segir að rétta talan sé 31.800 krónur en ekki 50.400 eins og samtökin reiknuðu út.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira