Hús starfslokabæjarstjórans óselt 3. desember 2008 16:02 Ólafur Örn Ólafsson, fyrrverandi bæjarstjóri Grindavíkurbæjar.
Einbýlishús Ólafs Arnar Ólafssonar, fyrrum bæjarstjóra í Grindavík, er enn óselt og lítur allt út fyrir að bæjarfélagið þurfi að kaupa húsið. Ráðningarsamningur Ólafs komst í hámæli í sumar þegar upp úr slitnaði í meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Í framhaldinu mynduðu framsóknarmenn nýjan meirihluta með Samfylkingunni og lét Ólafur á þeim tímamótum af störfum sem bæjarstjóri. Ráðningartími Ólafs var út yfirstandandi kjörtímabil og af því loknu fær hann að auki sex mánaða laun. Næstu sveitarstjórnarkosningar fara fram í maí 2010. Í heildina mun Ólafur því fá greidd laun í 28 mánuði frá starfslokum. Í samningunum er ákvæði sem skuldbindur Grindavíkurbæ til að kaupa einbýlishús Ólafs takist honum ekki að selja það sex mánuðum eftir starfslok. Húsið var keypt á rúmar 40 milljónir króna árið 2007. Jón Þórisson, fjármálastjóri Grindavíkurbæjar, segir að bæjarfélagið mun að öllum líkindum kaupa húsnæðið 15. janúar náist ekki að selja það fyrir þann tíma. Ólafur fær þá greitt fyrir upphaflegt kaupverð hússins framreiknað með vísitölu. Jón segir að reynt verði að selja húsið á nýjan leik. Það sé ekki hugsað sem framtíðareign. Mánaðarlaun Ólafs voru rúmlega 1,2 milljónir króna og jafnframt verðtryggð. Heildarkostnaður Grindavíkurbæjar með launatengdum gjöldum við launahluta samkomulagsins er yfir 42 milljónir króna. Þegar núverandi meirihluti tók við 14. júlí voru laun bæjarstjóra lækkuð um 20%. Auk þess hefur sitjandi bæjarstjóri ekki samskonar ákvæði og Ólafur hafði um húsnæði sitt í ráðningarsamningi sínum.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fleiri fréttir Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist á Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Sjá meira