Lífið

Slysavarnarkonur þinguðu í Vestmannaeyjum

Á myndinni má sjá fríðan flokk kvenna sem sótti þingið í Vestmannaeyjum.
Á myndinni má sjá fríðan flokk kvenna sem sótti þingið í Vestmannaeyjum.

Níunda kvennaþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar var haldið í Vestmannaeyjum um helgina. Í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu segir að fyrsta þeirra hafi verið haldið að Varmalandi árið 1995 en markmiðið með þinginu hafi verið að styrkja stöðu deildanna innan félagsins og segja megi að það sé enn markmið þess.

Slysavarnadeildin Eykyndill í Vestmannaeyjum sá um framkvæmd þingsins og skiptu þær oftar en einu sinni um húsnæði vegna plássleysis þar sem þátttaka var afar góð. Um 170 konur sátu þingið sem er tvöföld mæting miðað við síðasta þing.

Þema þingsins var staða og framtíðarsýn slysavarnadeilda félagins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.