Ungir jafnaðarmenn vilja fresta frumvarpi heilbrigðisráðherra um sjúkratryggingar 8. september 2008 19:06 Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna.
Ungir jafnaðarmen undrast að þingflokkur Samfylkingarinnar ætli að stuðla að því að frumvarp heilbrigðisráðherra um sjúkratryggingar verði samþykkt óbreytt á yfirstandandi þingi. Í ályktun Ungra jafnaðarmanna segir að frumvarpið geri ráð fyrir að hægt verði að fela einkaaðilum rekstur heilbrigðisþjónustu án þess að tryggt verði að þær reglur sem gildi um opinbera þjónustu, og eigi að miða að því að vernda réttaröryggi borgaranna, verði látnar gilda áfram. Þetta þýði að grunnreglur stjórnsýsluréttarins, svo sem jafnræðisreglan, meðalhófsreglan, lögmætisreglan og hæfisreglur stjórnsýsluréttarins muni ekki gilda um starfsemina verði aðilum utan opinbera kerfisins falinn rekstur heilbrigðisstofnunar, eða hluta slíkrar stofnunar. Þá geri frumvarpið ekki ráð fyrir að fyrir hendi sé eftirlitsaðili, svo sem óháð úrskurðarnefnd, sem einstaklingar geti leitað til ef þeir telji einkaaðila ekki vera að sinna skyldum sínum með eðlilegum hætti. „Frumvarpið gengur því í grundvallaratriðum gegn stefnu Samfylkingarinnar, en kjarni þeirrar stefnu birtist í því grunnskilyrði að réttarstaða einstaklinga breytist ekki verði einkaaðilum falið að sinna þjónustu á sviði heilbrigðismála. Áratugum saman hefur ríkt sátt í samfélaginu um með hvaða hætti sinna eigi heilbrigðisþjónustu hér á landi og er með frumvarpinu verið að vega að þeirri sátt. Ungir jafnaðarmenn skora því á þingflokk Samfylkingarinnar að afgreiða ekki málið að svo stöddu heldur láti fresta því fram á næsta þing, enda eru fordæmi fyrir slíku, nú síðast þegar þingflokkur Sjálfstæðisflokks afgreiddi ekki frumvarp umhverfisráðherra að skipulags-, mannvirkja- og brunamálalögum vegna ákvæða í frumvarpinu um landsskipulag. Með því að fresta afgreiðslu frumvarpsins verður hægt að vinna það betur með það í huga að tryggja að grundvallarréttindi einstaklinga sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda verði ekki fyrir borð borin," segir í ályktun frá Ungum jafnaðarmönnum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Sjá meira