Grímseyjarmál komið til saksóknara - Byrgismál á leiðinni 8. september 2008 10:57 Brynjólfur Árnason, fyrrverandi sveitarstjóri í Grímseyjarhreppi.
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hefur lokið rannsókn á meintum brotum fyrrverandi sveitarstjóra Grímseyjarhrepps og sent það til saksóknara til ákvörðunar um saksókn. Þá er rannsókn á meintum efnahagsbrotum í Byrgismálinu svokallaða að ljúka og málið á leið til saksóknara. Brynjólfur Árnason, fyrrverandi sveitarstjóri Grímseyjarhrepps, er grunaður um fjárdrátt í opinberu starfi. Grunur vaknaði um athæfið þegar Brynjólfur var dæmdur í héraðsdómi fyrir að hafa stolið nærri 13 þúsund lítrum af olíu til húshitunar í nóvember í fyrra. Fljótlega eftir að farið var að skoða bókhald Grímseyjarhrepps vaknaði grunur um stórfelld fjársvik Brynjólfs. Honum var sagt upp störfum sem sveitarstjóra og málið í framhaldi kært til lögreglu. Að sögn Sveins Ingibergs Magnússonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá efnahagsbrotadeildinni, er rannsókn málsins lokið og það hefur verið sent saksóknara deilarinnar. Hann tekur væntanlega ákvörðun á næstu vikum um það hvort ákært verður í málinu. Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins.MYND/Egill Skýrslutökum í rannsókn á meintum efnahagsbrotum í rekstri Byrgisins er lokið en að sögn Sveins er verið að ganga frá gögnum í málinu. Búast má því að það verði sent saksóknara á næstunni. Ráðist var í rannsókn málsins í kjölfar svartrar skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjármál Byrgisins sem birt var í byrjun síðasta árs. Niðurstöður hennar benda til að ólöglega hafi verið staðið að rekstrinum og að fjármunir sem sannanlega hafa runnið til stjórnenda og starfsmanna Byrgisins séu langt umfram það sem fram komi í bókhaldi eða ársreikningum félagsins. Var um tugi milljóna króna að ræða. Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, hefur þegar hlotið þriggja ára fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum sem voru skjólstæðingar hans hjá Byrginu.
Mest lesið Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Innlent Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Erlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Fleiri fréttir Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Sjá meira