Innlent

Jónína Bjartmarz: Stemningin í höllinni var ólýsanleg

Jónína Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra, var á leik Íslendinga og Spánverja í dag. Hún segir að stemningin hafi verið ólýsanleg.

„Þetta var stórkostlegt. Engu líkt. Það eru allir hérna hálf dofnir eftir þetta. Þetta var stórkostleg stund sem við upplifðum.“

Jónína segir að stemningin í íþróttahöllinni þar sem leikurinn fór fram hafi verið mikil.

„Heimamenn studdu þétt við bakið á okkar liði og hvöttu strákanna“

Jónína breytti ferðatilhögun sinni og frestaði flugi heim til Íslands til þess að geta séð leikinn í dag. Hún sér ekki eftir því og ætlar að sjálfsögðu á úrslitaleikinn á sunnudaginn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×