Tími aðgerða runninn upp Heimir Már Pétursson skrifar 7. mars 2008 18:30
Formaður Vinstri grænna segir að tími aðgerða sé runnin upp í efnahagsmálum og leggur til víðtækar aðgerðir í efnahagsmálum sem m.a. fela í sér að styrkja stöðu Seðlabankans verulega. Hann segir Íslendinga nú vera að greiða herkostnaðinn af stóriðju- og útrásarveislunni undanfarin ár. Þingflokkur Vinstri grænna kynnti í dag frumvarp um ráðstafanir í efnahagsmálum, sem formaður flokksins segir miða að því að ná tökum á hagstjórninni og innleiða á ný efnahagslegan stöðugleika. Í frumvarpinu er m.a. gert ráð fyrir að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans um 80 milljarða og eigið fé bankans um 40 milljarða. Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna segir ríkisstjórnina nánast sambandslausa við Seðlabankann. Nauðsynlegt sé að treysta undirstöður efnahagslífsins og það geri tillögur Vinstri grænna. Steingrímur segir mikið innyrðis ójafnvægi ríkja í efnahagskerfinu auk þess vanda sem á rætur sínar í alþjóðakerfinu og í viðskiptum við útlönd. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að fimm milljörðum verði veitt til illa stæðra sveitarfélaga í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Aðgerðir ríkisstjórnarinar hafi erkki tekið á vanda þeirra. „Það er mikið innbyrðis ójafnvægi í efnahagsmálunum," segir Steingrímur. Á meðan þensla hafi verið á höfuðborgarsvæðinu og sumstaðar úti á landi hafi verið samdráttur í öðrum sveitarfélögum. Að auki leggja Vinstri grænir til að ýmis sjóðir eins og nýsköpunarsjóður verði efldir og stóriðjuframkvæmdum slegið á frest. Steingrímur segir að landsmenn séu nú að greiða herkostnaðinn af stóriðju-og útrásaræðinu.
Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fleiri fréttir Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Sjá meira