Vill að ríkisstjórnin segi af sér 28. apríl 2008 15:42
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, hvatti ríkisstjórnina til þess að segja af sér á Alþingi í dag um leið og hann gagnrýndi hana fyrir aðgerðaleysi í efnahagsmálum. Guðni vakti athygli á því í fyrirspurnartíma að verðbólga væri nú nærri 12 prósent og hefði ekki verið meiri í um tuttugu ár. Engin ríkisstjórn hefði verið jafnmáttvana frammi fyrir efnahagsvanda og núverandi ríkisstjórn. Þá sagði hann verkalýðshreyfinguna hafa gagnrýnt aðgerðaleysið og atvinnulífið kallaði á evru. Allt sem framsóknarmenn hefðu sagt hefði komið fram en forsætisráðherra og ríkisstjórnin bæri meiri ábyrgð á ástandinu en aðrir. Hún hefði horft til Seðlabankans sem væri með hæstu stýrivexti í heimi. Efnahagsvandinn kæmi að utan og vandræðin yrðu ekki leyst uppi í Seðlabanka. Ríkisstjórnin þyrfti að takast á við vandann en hann hefði gengið mánuðum saman. Ríkisstjórnin ætti því að segja af sér. Verðbólgukúfur sem hjaðnar hratt Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði aðeins vanta í ræðu Guðna að hann segði að hann byðist sjálfur til þess að taka við. Um verðbólguna sagði forsætisráðherra að verðbólgutölurnar í dag hefðu verið verrri en menn hefðu búist við. Það hefði legið í hlutarins eðli að Íslendingar myndu ganga í gegnum verðbólgukúf en miðað við verðbólguna nú væri líklegt að hann gengi hraðar yfir en búist hefði verið við og verðbólga minnka hratt á næstunni. Það væru góðu fréttirnar í stöðunni. Ráðherra benti enn fremur á að heimsmarkaðsverð á ýmsum nauðsynjum eins og korni og olíu hefði hækkað mikið og þá hefði gengi króinunnar veikst mikið og verðbreytingar skilað sér hratt úr í samfélagið. Einhverjir kynnu nýta sér lækkun krónunnar til að hækka verð og við því þurfi að bregðast. Það hefði ríkisstjórnin gert með því að samþykkja tillögur viðskiptaráðherra um aðgerðir í verðlagseftirliti og fleira. Forseti ASÍ saknar Framsóknar Guðni sagðist hafa rætt við Grétar Þorsteinsson, forseta ASÍ, sem hefði sagst sakna þess tíma þegar Framsóknarflokkurinn hefði verið við völd og tekið á svipuðum vanda á árunum 2001 og 2002. Ráðherra léti eins og það dygði að stinga fjórum milljónum í vasa viðskiptaráðherra og vísaði Guðni þar til samninga ráðherra við ASÍ og Neytendastofu um verðlagseftirlit. ,, Þvílík háðung," sagði formaður Framsóknarflokksins. Sagði hann ríkisstjórnina hafa fengið fjölmargar viðvaranir og vísaði hann til ríkisstjórnarinnar árið 1988 sem sprungið hefði í beinni útsendingu vegna mikils ósættis um alla hluti. Spurði hann forsætisráðherra hvort það væri svona erfitt að eiga við Samfylkinguna í efnahagsmálum. Geir H. Haarde benti þá á að verðbólguvandinn væri innfluttur og aðstæður væru með þeim hætti að menn hefðu ekki séð þær fyrir þegar kjarasamningar voru gerðir. Forsendur væru breyttar og það væri verkefni allra að takast á við það. Sagði hann þegar búið að ákveða að fundur yrði haldinn á samráðsvettvangi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins og hann færi líklega fram strax eftir helgi. Þá myndu menn taka til óspilltra málanna eins og kostur væri.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira