Lífið

Draumalandið komið út á ensku - Björk skrifar formála

Kápan á bók Andra Snæs, Dreamland - A Self-Help Guide For á Frightened Nation.
Kápan á bók Andra Snæs, Dreamland - A Self-Help Guide For á Frightened Nation.

Draumalandið, bók Andra Snæs Magnasonar, hefur verið gefin út á ensku af forlaginu Citizen Press. Nefnist hún"Dreamland - A Self-Help Guide For a Frightened Nation." Björk ritar formála. Enska útgáfan kom út hér á landi sama dag og Náttúru tónleikarnir voru haldnir í Laugardal. Hún er nú til sölu í bókabúðum um land allt.

Bókin verður kynnt í Bretlandi í haust, og útgáfunni fylgt eftir með fyrirlestraröð Andra Snæs, bæði á Íslandi og í Bretlandi.

Fyrsti fyrirlesturinn var 16. ágúst á The Green Man Festival í Wales.

Þar var fullt hús og viðtökur áhorfenda mjög góðar.

Draumalandið var ein umtalaðasta bókin á Íslandi þegar hún kom út fyrir tveimur árum. Það er augljóst af viðbrögðum við ensku útgáfunni, að hún vekur athygli enda er umræðuefnið ekki sér-íslenskt.

Gagnrýnendur bókarinnar eru flestir sammála um að umræðan um hvernig eigi að umgangast náttúruna er, og á að vera ofarlega á dagskrá og að vandi Íslands er í hnotskurn, vandi heimsins. Eins og íslenskir lesendur vita hefur Andra Snæ tekist að vekja áhuga á þessu viðfangsefni samtímans af einstakri hugmyndaauðgi og áunnið sér virðingu samherja og mótherja fyrir vel skrifaðan teksta og vönduð vinnubrögð.

Þessi bók á því erindi á heimsmarkað, þar sem hún skilgreinir umræðuna að mörgu leyti upp á nýtt. Hún getur haft gríðarleg áhrif á hugarfar fólks að mati gagnrýnenda.

Ýmsir fjölmiðlar hafa þegar tekið bókina til umfjöllunar og ljúka þeir upp einum rómi um að hún sé athyglisverð og vel skrifuð.

Times Literary Supplement sagði um bókina að Andri Snær tækist á við

alheimsvandamál á stórskemmtilegan hátt og út frá þjóðlegu, íslensku

sjónarhorni.Draumalandið minnir á texta Naomi Klein (No Logo, Shock

Doctrine) og mikilsverðar vangaveltur um vinnubrögð kapítalista, um

sjálfbærni og um það hvaða leið við viljum feta inní nýja öld.

New York blaðið, The Onion, sem þekkt er meðal ungs fólks um allan

heim, segir að einlægni og hógværð Andra sé sjarmerandi og gaman sé

að rökræðum hans við sjálfan sig og von hans um að hægt sé að draga

úr mengun án þess að líf okkar þurfi að verða fátækara.

"Ísland vegur og metur", segir Dagens Nyheter. "Eftirspurn eftir bók

Andra Snæs Magnasonar, gefur til kynna að, að stöðugt fleiri átta sig

á því að það eru til valkostir við hina gömlu aðferð við baráttu gegn

fátækt: Að misnota náttúruna." Blaðið bendir á að orkuvandi heimsins,

geti orðið til þess, þvert á spár, að skapa fjölbreyttari og betri

kosti við atvinnusköpun og orkunýtingu.

Í heilsíðuumfjöllun um Draumalandið, þann 22. júlí síðastliðinn, segir Frankfurter Allgemeine Zeitung: "Það góða við Draumalandið er, að bókin reynir aldrei að troða neinu ofan í kokið á lesandanum, heldur er textinn alvörugefinn og í bland sjálfhæðinn, blandar inní frásögnina sögum úr hvunndeginum - en auðvitað eru það málin sem snúa að öllum heiminum, sem gera bókina áhugaverða fyrir útlendinga.

Hversu miklu skal fórna til að skapa örfá störf? Hvað er maður tilbúinn til að beygja sig fyrir illskiljanlegum útskýringum risafyrirtækja og fjölmiðla og hversu mikið frumkvæði einstaklinga þarf til að tryggja frelsi og sjálfstæði?."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.